Tíska og hönnun

Gylfi klæddist fötum frá Thom Sweeney

Sylvía Hall skrifar
Hjónin geisluðu á brúðkaupsdaginn sjálfan.
Hjónin geisluðu á brúðkaupsdaginn sjálfan. Instagram
Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur birt myndir á Instagram-síðu sinni frá brúðkaupi sínu og Alexöndru Helgu Ívarsdóttur um síðustu helgi. Hann segir helgina hafa verið stórkostlega og sendir sérstakar þakkir til tískuhússins Thom Sweeney.



 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by Gylfi Sigurdsson (@gylfisig23) on Jun 21, 2019 at 2:13am PDT



„Stórkostleg helgi á Ítalíu. Takk Thom Sweeney fyrir hjálpina!“ skrifar Gylfi við færsluna sem hann birti í morgun. Þar má sjá Gylfa og Alexöndru á brúðkaupsdaginn sjálfan en Gylfi klæddist bæði hvítum og svörtum jakka. Þá var brúðarkjóll Alexöndru var ekkert slor en hann var hannaður af írsaelska hönnuðinum Galiu Lahav.

Sjá einnig: Gali­a Lahav hannaði brúðar­kjól Alexöndru Helgu

Mennirnir á bakvið Thom Sweeney eru þeir Thom Whiddett og Luke Sweeney en þeir hófu samstarf árið 2006. Fyrsta verslun þeirra opnaði í London árið 2009 og síðan þá hefur merkið náð mikilli útbreiðslu, sérstaklega í Evrópu.



 
 
 
View this post on Instagram
Working on a bespoke tweed coat today in London’s Weighhouse Street shop.

A post shared by THOM SWEENEY (@thom__sweeney) on Jun 5, 2019 at 12:55am PDT


Tengdar fréttir

Gylfi og Alexandra gengu í það heilaga

Það hefur vart farið fram hjá neinum að brúðkaup Gylfa Þórs Sigurðssonar og Alexöndru Helgu Ívarsdóttur fór fram í dag. Engu var til sparað og var brúðkaupið haldið í stórkostlegu umhverfi við Como-vatn í norðurhluta Ítalíu.

Dagurinn töfrum líkastur að sögn Alexöndru Helgu

Alexandra Helga Ívarsdóttir segir að brúðkaupsdagur þeirra Gylfa Þórs Sigurðssonar knattspyrnukappa hafi verið töfrum líkastur. Turtildúfurnar létu pússa sig saman í blíðskaparveðri við Como vatn á Ítalíu á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×