Fékk gagnrýni frá Trump í fyrradag en skaut Bandaríkjunum í undanúrslitin í kvöld

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rapinoe fagnar marki í kvöld.
Rapinoe fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Bandaríkin er komin í undanúrslitin á HM kvenna eftir 2-1 sigur á gestgjöfunum, Frökkum, er liðin mættust í París í kvöld.

Það voru ekki liðnar nema fimm mínútur af leiknum er fyrsta markið kom. Megan Rapinoe skoraði markið en aukaspyrna hennar fór í gegnum allan teiginn og í netið.

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, gagnrýndi Rapinoe eftir ummæli hennar í 16-liða úrslitunum og hún átti heldur betur eftir að láta til sín taka í kvöld.

Eftir frábæra sókn tvöfaldaði Rapinoe forystuna á 65. mínútu. Sending Alex Morgan var hnitmiðuð, beint á Rapinoe sem skilaði boltanum í netið. 2-0 og heimsmeistararnir í góðri stöðu.

Frakkar fengu líflínu er Wendie Renard skoraði eftir glæsilega aukaspyrnu. Hún stangaði boltann í netið, hennar fjórða mark á mótinu, sem er ansi gott af varnarmanni.

Heimsmeistararnir frá því 2015 eru því komnir í undanúrslitin en þar mæta þær Englandi.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira