Messi og félagar afgreiddu Venesúela og Brasilía bíður í undanúrslitunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Argentínumenn fagna í kvöld.
Argentínumenn fagna í kvöld. vísir/getty
Argentína er komið í undanúrslit Suður-Ameríkukeppninnar eftir 2-0 sigur á Venesúela í átta liða úrslitunum í kvöld.

Það voru liðnar tíu mínútur er fyrsta markið kom. Lautaro Martinez, framherji Inter, skoraði það eftir undirbúning Sergio Aguero og Lionel Messi.

Annað markið kom á 73. mínútu. Slakt skot Sergio Aguero virtist auðvelt fyrir markvörð Venesúela, Wuilker Farine. Það reyndist ekki svo og hann missti boltann fyrir fætur Giovani Lo Celso sem kom boltanum yfir línuna.

Það verður því stórleikur í undanúrslitunum er Argentína og Brasilía mætast en þriðjudagskvöldið verður áhugavert.

Leikurinn fer fram á þriðjudagskvöldið klukkan 21.30 en leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni á Stöð 2 Sport.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira