Þetta eru ummælin sem Jón Baldvin stefnir Aldísi og RÚV fyrir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júní 2019 11:47 Bryndís Schram hefur staðið þétt við bak eiginmanns síns sem sætt hefur ásökunum úr mörgum áttum undanfarin misseri. Fréttablaðið/Anton Brink
Jón Baldvin Hannibalsson gerir enga fjárkröfu í stefnu á hendur dóttur sinni Aldísi Schram fyrir meiðyrði. Hann krefst þess einfaldlega að tíu ummæli hennar, níu í Morgunútvarpinu á Rás 2 í janúar og ein sem hún lét falla á Facebook, verði dæmd dauð og ómerk. Ummælin snúa að ásökunum um barnaníð, ólögmæta frelsissviptingu og sifjaspjell. Eins og fram hefur komið stefnir Jón Baldvin einnig þáttastjórnandnanum Sigmari Guðmundssyni og Ríkisútvarpinu. Er Sigmari stefnt fyrir fern ummæli úr þættinum og Ríkisútvarpinu sömuleiðis. Er Sigmar krafinn um 2,5 milljónir króna. Þá er þess krafist að gerð verði grein fyrir forsendum og niðurstöðum dóms í málinu í Morgunútvarpi Rásar 2 ekki seinna en viku eftir dómsuppsögu. Ella greiði Ríkisútvarpið 50 þúsund krónu í dagsektir. „...líka að misnota lítil börn“ Að neðan má sjá þau tíu ummæli sem Aldísi er stefnt fyrir og gert er grein fyrir í stefnunni sem fréttastofa hefur undir höndum: Morgunútvarp, Rás 2, 17. janúar 2019, ummæli viðhöfð af stefndu Aldísi. 1. ... hann fær mig undir fölsku yfirskini að heimsækja afa minn ... mér var haldið inni þarna í mánuð sem sagt ólöglega. 2. ... já. Fimm sinnum á næstu 10 árum kastast í kekki milli mín og Jóns Baldvins Hannibalssonar og því lyktaði ávalt með því að (sic) sigaði á mig lögreglu sem handtók mig, hann er náttúrlega utanríkisráðherra ... 3. Hann gat bara þaðan í frá, þáverandi utanríkisráðherra og síðar sendiherra, virðist vera að hringja bara í lögreglu og þá var ég þar með handtekin, umsvifalaust í járnum, farið með mig upp á geðdeild ... 4. ... hann er þá líka að misnota lítil börn. 5. ... ég neita að skilja þau eftir í umsjón karls sem káfar á litlum stúlkubörnum. 6. Og sem sagt 10 mínútum eftir að ég kæri Jón Baldvin þá hringir dyrabjallan. Þar ruddust þarna inn tveir lögreglumenn ef ekki þrír og ég, þegar ég sé það þá reyni ég að loka en auðvitað tókst mér það ekki, þeir ryðjast þá þar með inn og þeir svara mér engu, ryðjast inn í stofu þar sem dóttir mín 5 ára gömul er að lesa og þegar barnið er tekið frá mér þá verð ég æf. 7. ... það er faðir minn sem stendur fyrir því að hér eigi að loka mig inni. 8. Fíkn, auðvitað er barnagirnd fíkn, þetta er fíkn. 9. ... nauðungarvistun án dóms og laga er þá ólögmæt frelsissvipting ... Facebook, 5. febrúar 2019, höfundur stefnda Aldís.10. ... og sigra hann og hans barnaníðingabandalag. Þá er Sigmari stefnt fyrir eftirfarandi ummæli sem hann flutti í innslögum í þættinum, að því er segir í stefnunni. Er Aldísi stefnt til vara í þessum hluta stefnunnar. Morgunútvarp, Rás 2, 17. janúar 2019, höfundur og flytjandi stefndi Sigmar, til vara stefnda Aldís.11. ... að Jón Baldvin hafi notað aðstöðu sína sem sendiherra til að láta nauðungarvista hana á geðdeild. 12. Sá fundur Aldísar og Jóns Baldvins segir hún hafa reynst sér örlagaríkur og orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauðungarvistuð á geðdeild. 13. ... að Jón Baldvin hafi sett sig í samband við félagsmálayfirvöld og geðdeild með það fyrir augum að fá hana nauðungarvistaða í enn eitt skiptið. 14. Þar segir hún einnig að Jón Baldvin hafi framið sifjaspell þegar hún var fullorðin kona. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Var stefndu veittur frestur til að afla gagna og skila greinagerðum. Gefin kostur á að biðjast afsökunar Í stefnu Jóns Baldvins, hvers hagsmuna Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður gætir, að Aldísi hafi verið gefinn kostur á málalokum utan dómstóla þann 9. apríl 2019. Var gerð sú krafa að Aldís bæðist afsökunar á ummælum, viðurkenndi að þau væru röng og drægi þua til baka. Ríkisútvarpinu var boðið svipuð málalok nema einnig var gerð krafa um greiðslu miskabóta. Ekkert svar barst frá Aldísi en Ríkisútvarpið hafnaði sáttaboðinu. Væri Jóni Baldvini því nauðugur einn sá kostur að höfða dómsmál til að verja æru sína. Gerð er grein fyrir ómerkingarkröfu Jóns Baldvins í stefnunni. Þar segir að skipta megi hinum ærumeiðandi ummælum í þrjá flokka. Í fyrsta lagi er stefnanda gefið sök að hafa beitt áhrifum sínum og völdum og misnotað aðstöðu sína sem utanríkisráðherra og síðar sendiherra til þess að láta svipta stefndu Aldís ítrekað frelsi sínu með ólögmætum hætti. Í öðru lagi er stefnandi sakaður um það að vera barnaníðingur og misnota lítil börn kynferðislega. Í þriðja lagi þá er stefnanda gefið að sök að hafa haft samræði við stefndu Aldísi og þannig gerst sekur um sifjaspell. „Í öllum hinum umstefndu ummælum felst ásökun um að stefnandi hafi gerst sekur um alvarleg hegningarlagabrot. Ummælin eru ósönn og eru til þess fallin að meiða æru stefnanda. Stefnandi byggir á því að stefndi Sigmar hafi í umrætt skipti brotið gegn starfs- og siðareglum blaðamanna, sbr. einkum 3. og 4. gr. siðareglna Blaðamannafélags Íslands og 6. og 7. gr. starfsreglna RÚV frá 1. júní 2016,“ segir í stefnunni.
Dómsmál Fjölmiðlar Mál Jóns Baldvins Hannibalssonar Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira