Mettilboð frá Tottenham í miðjumann Real Betis Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2019 17:45 Giovani Lo Celso. Getty/Aitor Alcalde Colomer
Tottenham hefur ekki keypt einn einasta leikmann í síðustu tveimur félagsskiptagluggum en nú lítur út fyrir að félagið ætli að slá félagsmetið í upphafi sumargluggans. Tottenham á að hafa boðið 53 milljónir punda í Giovani Lo Celso samkvæmt frétt BBC. Lo Celso er miðjumaður hjá Real Betis. Dýrasti leikmaður Tottenham er eins og er Kólumbíumaðurinn Davinson Sanchez sem Tottenham keypti fyrir 42 milljónir punda frá Ajax í ágúst 2017.Tottenham have made a club-record £53m bid for Real Betis midfielder Giovani Lo Celso, reports @BBCSportpic.twitter.com/TQf0ikNqyr — B/R Football (@brfootball) May 28, 2019Giovani Lo Celso er 23 ára Argentínumaður og er því samlandi knattspyrnustjórans Mauricio Pochettino. Lo Celso var í eigu Paris Saint-Germain frá 2016 til 2019.Real Betis fékk hann á láni frá PSG í ágúst 2018 með möguleika á að kaupa hann. Real Betis nýtti sér þann forkaupsrétt í apríl 2019 en nú lítur út fyrir að spænska félagið ætli að selja hann strax og græða góðan pening. Real Betis fékk hann frá PSG fyrir 22 milljónir evra og er mögulega að fara að selja hann fyrir 60 milljónir evra. Giovani Lo Celso spilar vanalega á miðri miðjunni en hann var með 9 mörk og 5 stoðsendingar í 32 leikjum í spænsku deildinni á nýloknu tímabili. Alls var hann með 16 mörk og 6 stoðsendingar í 45 leikjum í öllum keppnum.Spurs have made a significant bid for Real Betis midfielder Giovani Lo Celso. More: https://t.co/Hz2KGvyA7h#bbcfootballpic.twitter.com/v066RePEXU — BBC Sport (@BBCSport) May 28, 2019Verði af þessum kaupum þá verður Giovani Lo Celso fyrsti nýi leikmaður Tottenham síðan að félagið keypti Lucas Moura frá Paris Saint-Germain í janúar 2018. Lucas Moura og Lo Celso voru liðsfélagar hjá PSG. Það er nóg að gera hjá Giovani Lo Celso á næstunni því hann var á dögunum valinn í hóp Argentínumanna fyrir Suðurameríkubikarinn í sumar.
Enski boltinn Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Sjá meira