Innlent

Lög­regla þurfti að hafa í­trekuð af­skipti af skóla­böllum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Annað ballið var í Kópavogi og hitt í Víðidal.
Annað ballið var í Kópavogi og hitt í Víðidal. Vísir/vilhelm
Lögreglan fékk tilkynningu um þjófnað úr skartgripaverslun í hverfi 103 í gærkvöldi.  Ungur maður var síðan handtekinn grunaður um þjófnaðinn og vistaður í fangageymslu.

Áður en honum var stungið inn kom í ljós að hann var einnig með ólögleg fíknifefni á sér.  

Lögregla þurfti í nótt ítrekað að hafa afskipti af ölvuðum unglingum á skólaböllum, annars vegar í Kópavogi og hins vegar í Víðidal.

Mikið var um ölvun og slagsmál og þurfti að færa einn unginginn í Kópavogi á lögreglustöð þangað sem hann var sóttur af foreldrum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×