Fyrsta tap Zidane eftir endurkomuna til Madrídar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lýsandi mynd fyrir leik kvöldsins.
Lýsandi mynd fyrir leik kvöldsins. vísir/getty
Zinedine Zidane tapaði sínum fyrsta leik eftir endurkomuna til Real Madrid er Madrídingar töpuðu 2-1 fyrir Valencia á útivelli í spænska boltanum í kvöld.

Þetta var þriðji leikur Real undir stjórn Zidane eftir að hann snéri aftur og hafði Real unnið fyrstu tvo leikina með markatölunni 5-2.

Goncalo Guedes kom Valencia yfir á 35. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik. Sjö mínútum fyrir leikslok var það svo varnarmaðurinn Ezequiel Garay sem tvöfaldaði forystuna.

Í uppbótartíma minnkaði Karim Benzema muninn en nær komust gestirnir ekki og mikilvægur sigur Valencia.

Real er því áfram í þriðja sætinu með 57 stig, þrettán stigum á eftir toppliði Barcelona, og fimm stigum á eftir Atletico Madrid sem er í öðru sætinu.

Valencia er í fimmta sætinu með 46 stig. Þeir eru í mikilli baráttu við Getafe og fleiri lið um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira