Barcelona með níu fingur á titilinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lionel Messi, fyrirliði Barcelona.
Lionel Messi, fyrirliði Barcelona. vísir/getty
Barcelona er kominn með níu fingur á spænska meistaratitilinn eftir 2-0 sigur á Atletico Madrid í toppslag í kvöld.

Það dró til tíðinda strax á 28. mínútu er Diego Costa fékk beint rautt spjald. Hann sagði eitthvað sem fór fyrir brjóstið á Jesus Gil Manzano, dómara leiksins, sem henti honum beint í sturtu.

Það tok hins vegar sinn tíma fyrir Börsunga að komast yfir. Fyrsta markið kom ekki fyrr en mínútum fyrir leikslok er Luis Suarez skoraði með frábæru marki.







Annað markið kom ekki úr óvæntri átt því það var argentínski snillingurinn sem skoraði eftir að hafa leikið varnarmenn Atletico grátt. Lokatölur 2-0.

Barcelona er nú með ellefu stiga forskot á toppi deildarinnar en sjö umferðir eru eftir af deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira