Hamfaradagar Brynhildur Björnsdóttir skrifar 9. ágúst 2019 08:00
Urðarmáni Ari Jóhannesson Útgefandi: Mál og menning Fjöldi síðna: 212 Spánska veikin var ein skelfilegasta farsótt sem gengið hefur yfir landið, ekki hvað síst fyrir það að hún lagðist þyngst á ungt fólk og fólk á besta aldri, þá sem báru uppi samfélagið bæði hvað varðar atvinnulíf og umönnun. Urðarmáni gerist á haustmánuðum 1918 þegar spánska veikin bættist eins og djöflakrydd ofan á eldgos með tilheyrandi öskufalli og nístandi ískulda sem þegar réðu lögum og lofum í Reykjavík og álagið á samfélagið var gríðarlegt, ekki síst á heilbrigðisstarfsfólk. Höfundur bókarinnar Urðarmáni er læknir og sækir efniviðinn í heimildir um þetta tímabil sögunnar og greinilegt á bókinni að hann hefur bæði áhuga og ástríðu fyrir því. Sagan hefst um það leyti sem spánska veikin kemur til landsins og fylgir nokkrum persónum, bæði raunverulegum og ímynduðum af höfundarins hendi gegnum þessa hamfaratíma. Rammi hennar er frásögn læknis í nútímanum eða mjög náinni framtíð sem talar til nemenda sinna þegar skæð inflúensa sem svipar óhugnanlega til þeirrar fyrir rúmum hundrað árum, berst hingað með ferðamönnum og útlit er jafnvel fyrir að eitthvað af sögunni endurtaki sig.xxxUrðarmáni er mjög fallega og vel skrifuð bók og tekst höfundi bæði að viðhalda spennu og draga upp skýra og trúverðuga mynd af Reykjavík frostavetrarins 1918. Persónurnar eru einnig trúverðugar, hvort sem um er að ræða landlækni sem liggur undir ámæli fyrir að bregðast ekki rétt við þeim vágesti sem vitað var að myndi berja að dyrum og leitar krafta í vafasamar veitur, unga grasakonu sem þráir að verða ljósmóðir eða landsþekktan rithöfund sem leitast við að færa ástandið í orð. Lýsingar eru myndrænar og oft auðvelt að sjá fyrir sér hvernig bókin gæti litið út sem skjáverk, annaðhvort í sjónvarpi eða kvikmynd. Fyrst og fremst er þó lesnautn að stílnum sem er bæði meitlaður og háfleygur á köflum en þó læsilegur og aðgengilegur og dregur lesandann að bókinni og efninu. Þó söguefnið sé sótt í raunverulega atburði og fyrirmyndir sóttar í persónur sem voru þátttakendur í þeim er Urðarmáni þó skáldsaga fyrst og fremst enda dregur höfundur enga dul á það og tekur fram í formála. Þessi saga á hiklaust erindi við íslenska lesendur í dag, bæði vegna skemmtanagildis og af sagnfræðilegum og fagurfræðilegum ástæðum.Niðurstaða: Áhugaverð og spennandi saga um aldargamla hamfaradaga.
Birtist í Fréttablaðinu Bókmenntir Mest lesið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira