Erlent

Segir hættu á stríði á milli Bandaríkjanna og Íran

Hallgerður Kolbrún E Jónsdóttir skrifar
Mike Pompeo og Jeremy Hunt á fundi um kjarnorkumál í Íran.
Mike Pompeo og Jeremy Hunt á fundi um kjarnorkumál í Íran. Getty/Pool
Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, segir hættu á að Bandaríkin og Íran fari í stríð án þess að ætla það. Frá þessu er greint á vef fréttaveitu Sky News.

Þetta sagði hann eftir að Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hætti við að fara til Moskvu og ákvað þess í stað að fara til Brussel til að ræða við evrópska kollega sína um kjarnorkuógn Íran.

Þegar Hunt kom á fundarstað í Brussel sagði hann við blaðamenn: „við höfum áhyggjur af því að stríð brjótist út fyrir slysni vegna þróunar mála hjá öðrum hvorum málsaðila.“

„Nú þurfum við smá tíma þar sem allt er rólegt til að vera viss um að allir skilji hvað hin hliðin er að hugsa og mikilvægast af öllu þá þurfum við að vera viss um að við leiðum Írana ekki til að endurkjarnorkuvæða sig.“

„Ef Íran verður kjarnorkuveldi er mjög líklegt að nágrannar þeirra vilji verða það líka. Þetta er eitt óstöðugasta svæði í heiminum og þetta væri risa stórt skref í ranga átt.“

Federica Mogherini, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins sagði að viðræðurnar í dag myndu snúast mest um hvernig best yrði staðið að innleiðingu kjarnorkusamningsins.

Pompeo mun halda til Sochi á þriðjudag til að funda með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Vladimir Putin, forseta Rússlands.

Þessar ferðabreytingar koma til eftir að Sádi-Arabía tilkynnti að ráðist hafi verið á tvö olíuflutningaskip á sunnudag, fyrir utan strendur Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna. Annað skipanna var á leið sinni til að ná í olíu til að flytja til Bandaríkjanna.

Utanríkisráðuneyti Íran krafðist þess að fá frekari upplýsingar um það hvað gerðist og varaði gegn því að „þeir sem vildu illt færu brugga samsæri,“ og að erlend öfl reyndu að rýra öryggi og stöðugleika svæðisins.

Sækjast ekki eftir stríði

Spennan á milli Bandaríkjanna og Íran hafa farið vaxandi eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í maí í fyrra að hann hygðist draga Bandaríkin úr samningnum og hefja viðskiptaþvinganir gegn Íran á ný. Samningurinn var undirritaður árið 2015 á stjórnartíð Barack Obama.

Tehran hótaði í síðustu viku að auka auðgun úrans ef ekki yrði samþykkt að setja ný og betri skilyrði inn í kjarnorkusamninginn frá 2015 innan tveggja mánaða.

Hassan Rouhani, forseti Íran, gaf aðildarríkjum samningsins þessa úrslitakosti á eins árs afmælisdag ákvörðunar Trumps um að draga Bandaríkin úr samningnum.

Hunt sagði í síðustu viku að það yrðu afleiðingar ef Íranar gengju á bak orða sinna og færu ekki eftir samningnum.

Fyrir helgi sendu Bandaríkin flugmóðurskip og sprengjuvélar til Mið-Austurlanda eftir að John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafi, sagði Bandaríkin hafa fengið skýr merki um að Íran væri að undirbúa mögulega árás á hersveitir Bandaríkjanna á svæðinu.

Í viðtali við CNBC um helgina sagði Pompeo Bandaríkin ekki vera að leitast eftir stríði við Íran.

„Ef það kæmi til að Íran tæki ákvörðun um að ráðast gegn hagsmunum Bandaríkjanna – hvort sem það væri í Írak, Afganistan eða Jemen eða bara einhvers staðar í Mið-Austurlöndum – erum við óhrædd við að svara eins og við teljum viðeigandi,“ sagði hann í tengslum við ákvörðun yfirvalda að senda herafla inn í Persaflóa.


Tengdar fréttir

Segja bandarískar hersveitir enga ógn

Hershöfðingi í íranska Byltingarvarðliðinu segir að vera bandarískra hersveita á Persaflóa sé aðeins sálfræðihernaður og hluti áætlunar til að hræða stjórnvöld í Teheran.

Evrópa hafnar afarkostum Íransstjórnar

Frakkland, Þýskaland og Bretland, evrópsku aðildarríkin að JCPOA-samningnum um að Íranar fái ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum í skiptum fyrir afléttingu viðskiptaþvingana, hvöttu Írana í sameiginlegri yfirlýsingu í gær til þess að halda samningnum á lífi.

Íran krefst verndar gegn Bandaríkjunum

Forseti Írans hefur tilkynnt að ríkið ætli tímabundið að hætta að framfylgja kjarnorkusamningnum vegna þvingana Bandaríkjamanna. Íranar vilja vernd gegn þvingununum annars ætli þeir að framleiða auðgað úran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×