Þröstur Leó gerist kokkur við Hlemm Stefán Árni Pálsson skrifar 4. júní 2018 14:00 Þröstur Leó hefur komið víða við. vísir/ernir
Leikarinn góðkunni Þröstur Leó Gunnarsson bregður sér í nýtt hlutverk nú í vikunni þegar hann verður kokkur á Hlemmur Square hótelinu í miðbæ Reykjavikur. Þröstur Leó er einn ástsælasti leikari þjóðarinna og hefur meðal leikið fjölmörg hlutverk á sviði, í kvikmyndum og í sjónvarpi. Hann hefur m.a. hlotið Edduverðlaun fyrir hlutverk sín í Nóa Albínóa og Brúðgumanum. Þröstur var valinn Maður ársins árið 2015 af Vísi og Bylgjunni þegar hann bjargaði tveimur skipsfélögum sínum þegar fiskibáturinn Jón Hákon frá Bíldudal sökk út af Aðalvík. Þröstur hefur haft mikla ástríðu fyrir mat í gegnum tíðina og hefur unnið sem kokkur á sjó og einnig á Skrímslasetrinu á Bíldudal. Nú ætlar hann að leyfa gestum Hlemmi Square að njóta matargerðarlistar sinnar næstu tvær vikurnar. Eigandi Hlemmur Square er þýski hótelmógúllinn Klaus Ortlieb sem hefur langan bakgrunn í hótelrekstri. Hann hefur meðal annars rekið hið fræga Claridges í London, Copper Square í New York og Hotel Modern í New Orleans.Elva Ósk Ólafsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum í Hafinu í Þjóðleikhúsinu.Mynd/Hörður SveinssonHlemmur Square hótelið er staðsett við Hlemm, andspænis gömlu strætó stoppistöðinni sem nú er mathöll. Hótelið býður bæði upp á lúxussvítur og hostel herbergi fyrir yngri gesti. Veitingahúsið á Hlemmur Square er á jarðhæð hótelsins. „Þegar ég opnaði Hlemmur Square langaði mig að koma með gamla Reykjavikurandann aftur til baka,“ segir Ortlieb en hann heimsótti Ísland fyrst þegar hann var unglingur og varð ástfanginn af landi og þjóð. „Mig langaði að opna stað sem væri litríkur og bæði upp á vinalega þjónustu. Ég hef verið duglegur að styrkja íslensku tónlistar, kvikmynda og myndlistarsenuna í Reykjavik og búa til viðburði í kringum þá. Það er mér mikill heiður að fá vin minn, Þröst Leó til að kokka fyrir okkur. Ég hef verið svo heppinn að fá að borða heima hjá honum margoft og nú fæ ég að deila þeirra stórkostlegu reynslu með gestum mínum. Þröstur er sannur Íslendingur, alltaf til í að aðstoða vini sína.“ Þess má geta að eiginkona Þrastar, Helga Sveindís Helgadóttir ætlar að sjá um eftirréttina á matseðlinum.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira