Uppveðraður á foreldrafundi annarra barna en hans eigin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. nóvember 2018 16:30 Freyr Ólafsson sinnir formennsku í Frjálsíþróttasambandi Íslands í sjálfsboðamennsku. Hann fann þó tíma til að mæta á foreldrafund hjá börnum annarra foreldra í gærkvöldi. Frjálsíþróttasamband Íslands
Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands og fjögurra barna faðir, sló í gegn á Facebook-síðu sinni í dag þegar hann upplýsti um þátttöku sína á foreldrafundi drengja í 7. flokki drengja hjá Þrótti í gærkvöldi. Fundi sem hann átti ekkert erindi á. Hann segir sig og konu sína Kristjönu reyna að vera virk í félagsstörfum tengdum íþróttum og skóla. Of virk að mati unglinganna á heimilinu. „Í gærkvöldi má þó segja að ákveðnum hápunkti hafi verið náð. Ég var fulltrúi heimilisins á frábærum foreldrafundi 7. flokks stráka í knattspyrnu hjá Þrótti. Ég kom uppveðraður heim, en þegar við hjónin fórum að telja saman börnin og aldur þeirra kom í ljós að við eigum víst engan dreng í flokknum þennan veturinn,“ segir Freyr í færslunni sem vinir og kunningjar keppast við að hlæja að. Flestir gera þær athugasemdir að nógu erfitt sé allajafna að fá fólk til að mæta á slíka viðburði. Sjaldgæft sé að fólk bæti við sig foreldrafundum þar sem börn þeirra eigi ekki í hlut. Freyr hlær að þessu öllu saman í samtali við Vísi. Hann segir misskilninginn felast í því að sonur hans hafi gengið upp í 6. flokk í haust. Freyr hafi hins vegar gleymt að yfirgefa Facebook-grúppu flokksins og því tekið til sín að eiga að mæta á fundinn. Þangað hafi hann mætt og fundurinn, sem fjallaði um starfið í vetur, gengið vel. Veturinn hafi virkað spennandi, sem hann vafalítið verður hjá strákunum í 7. flokki. Freyr segist sem betur fer ekki hafa boðið fram krafta sína í ábyrgðarstörf enda með frjálsíþróttasambandið á herðunum. Hann þurfi að nýta tíma sinn og orku í að sannfæra Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra að drífa í að byggja þjóðarleikvang fyrir frjálsar íþróttir. Freyr og kona hans Kristjana eiga fjögur börn en þar af eru þrír drengir sem æfa fótbolta með Þrótti. Þá eru börn þeirra fjögur á fjórum skólastigum. Menntaskólanum við Sund, Laugalækjarskóla, Laugarnesskóla og leikskólanum Hofi.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira