Lífið

Ariana Grande og James Corden skíthrædd inni í draugahúsi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Corden og Grande stóðust verkefnið.
Corden og Grande stóðust verkefnið.
Söngkonan Ariana Grande og breski spjallþáttastjórnandinn James Corden hafa í gegnum tíðina brallað margt saman í þætti hins síðarnefnda.

Í gær var Hrekkjavakan í Bandaríkjunum og því þessari viku var innslag með þeim tveimur sýnt í þættinum en bæði fengu þau það verkefni að komast út úr mjög svo ógnvekjandi herbergi.

Um er að ræða herbergi sem til að mynda má einnig finna í Reykjavík Escape hér á landi. Þau þurftu að finna ákveðnar vísbendingar til þess að komast út úr rýminu og má sjá hér að neðan hvernig þetta gekk en þau voru bæði vægast sagt hrædd í þessi verkefni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×