Lífið

Plastflösku kastað yfir höfuð JóaPé á tónleikunum við Arnarhól

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leiðinlegt atvik á Menningarnótt.
Leiðinlegt atvik á Menningarnótt.
Rappararnir JóiPé og Króli komu fram á risatónleikum við Arnarhól á Menningarnótt og tóku þeir sína helstu slagara.

Óheppilegt atvik átti sér aftur á móti stað á tónleikunum þegar plastflösku var kastað upp á sviðið í miðjum flutningi.

YouTube-notandinn Donce Monce setur inn myndband af atvikinu á YouTube og er búið að hægja vel á atburðarrásinni í myndbandinu.

Um er að ræða plastflösku af Mountain Dew orkudrykknum og er greinilega töluverður vökvi í flöskunni sem flýgur rétt yfir höfuðið á Jóa Pé eins og sjá má hér að neðan. Þetta hefði auðveldlega getað farið illa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×