Lífið

Hafþór í hlutverki ofurstans í furðulegri auglýsingu KFC

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hafþór og hamborgarinn.
Hafþór og hamborgarinn. Skjáskot
Kraftakallinn - og leikarinn - Hafþór Júlíus Björnsson bregður sér í hlutverk Colonel Sanders í nýrri auglýsingu kjúklingarisans KFC.

Í þriggja mínútna langri auglýsingu, sem sjá má hér að neðan, rekur Hafþór sögu ofurstans; allt frá því að hann sagði skilið við heimili sitt í Kentucky-ríki í Bandaríkjunum og hélt til Íslands þar sem hann lagði stund á kraftlyftingar.

Síðar í auglýsingunni er Hafþór fenginn til að draga kassa sem inniheldur rúmlega 300 kíló af nýjum rétti KFC, hamborgara sem ber nafnið Double Colonel, 50 metra vegalengd.

Átökin má sjá í auglýsingunni hér að neðan, en hún hefur þegar fengið rúmlega 1,4 milljón áhorf. Ekki fylgir sögunni hvort hinn nýi réttur verði fáanlegur í íslenskum útibúum KFC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×