Vaka til heiðurs Jakobínu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 25. ágúst 2018 10:00 "Áður en ég las bréfin vissi ég lítið um æsku mömmu, bara árin eftir að hún kom í Garð,“ segir Sigríður. Fréttablaðið/Sigryggur Ari
Dagskrá til heiðurs Jakobínu Sigurðardóttur verður í Iðnó í dag og hefst klukkan 15. Sagnfræðingurinn Sigríður K. Þorgrímsdóttir, dóttir skáldkonunnar, er meðal þeirra sem þar koma fram. „Síðan mamma dó hef ég geymt bréfasafnið hennar sem er nokkuð stórt,“ byrjar Sigríður, spurð um hvað hún ætli að tala. „Til að gera langa sögu stutta fór ég að raða saman þessum bréfum og ákvað að skrifa bók um mömmu sem átti að koma út í ár en þegar maður er í fullu starfi ganga ekki allar fyrirætlanir upp. Því kviknaði hugmyndin að þessari menningardagskrá, hún heitir eftir annarri slíkri sem rauðsokkurnar héldu 1979.“ Í erindi sínu kveðst Sigríður ætla að tæpa á því hverjar stærstu spurningarnar voru hjá henni þegar hún byrjaði að skrifa bókina og reyna í örfáum atriðum að lýsa því hvernig þeim er svarað. „Ég veit að mömmu þætti þessi bók mín óþarfi. Hún vildi ekki beina kastljósinu að sinni persónu, enda af þeirri kynslóð og auk þess af Vestfjörðum. Hún lét víst markvisst eyðileggja mörg bréf sem hún skrifaði sjálf, því hef ég komist að. En mín hugsun er sú að halda minningu hennar á lofti og nafni sem höfundar.“ Jakobína var fædd í Hælavík á Hornströndum, elst þrettán systkina. Hún fór ung að heiman og vann fyrir sér í Reykjavík og á Suðurlandi. Árið 1949 tók hún saman við Þorgrím Starra Björgvinsson, bónda í Garði í Mývatnssveit. Eftir hana liggja fjórar skáldsögur, þrjú smásagnasöfn, kvæðabók og minningar og ævintýri fyrir fullorðna. Auk þess birtust bæði ljóð, greinar og smásögur í tímaritum og blöðum. Umfjöllunarefni hennar voru af ýmsum toga, meðal þeirra helstu má nefna stéttabaráttu, stöðu kvenna og náttúruvernd.En hverju skyldi Sigríður hafa komist að þegar fór að fara yfir bréfin sem hún hefur undir höndum? „Mamma var 17 ára þegar hún fór til Reykjavíkur og ég fræðist um margt með því að lesa bréfin sem fólkið af Hornströndum skrifar henni. Úr því hefur orðið til saga lítillar stelpu úr nyrstu og einangruðustu byggð landsins sem ætlar sér, frá því hún man eftir sér, að verða skáld þegar hún verður stór.“
Birtist í Fréttablaðinu Bókmenntir Mest lesið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira