Sumarspá Siggu Kling – Ljónið: Þetta reddast 1. júní 2018 09:00
Elsku Ljónið mitt, það er algjör staðreynd að alveg sama hvernig þú horfir á lífið, þú munt alltaf sigra á endanum. Ég hef verið að skemmta fyrir stórt fyrirtæki í Garðabæ og af 300 manns voru þrjú Ljón sem hreyfðu sig ekki þó miklir vinningar væru í boði fyrir þau að gera eitthvað, vera hress, leika eða gera hvað sem er, sátu þau alveg kyrr, en á endanum fengu þau að sjálfsögðu vinning, voru bara svo cool, létu ekki segja sér fyrir verkum en enduðu samt sem sigurvegarar! Þú þarft að hafa þessa setningu sterkt yfir huganum þetta sumar „þetta reddast“ sem verður líka nýja heitið á bókinni sem ég er að skrifa. Þú ert köttur og þegar þér finnst að öll ljós séu slökkt og þú veist ekki hvert þú átt að stökkva lendirðu samt alltaf á fótunum eða lopunum því þú ert KÖTTUR og hefur níu líf hjá öllum sem hafa einhvern tímann elskað þig eða elska þig núna. Í ástamálum gengur allt miklu betur en þú þorðir að vona, þó þú ættir stundum að skammast þín og vera auðmjúkur eða auðmjúk kemstu samt upp með að vera lævíst og lipurt Ljón. Það er svo mikilvægt þú notir alla þá dáleiðslu og daðurtækni sem þú hefur svo sterkt með þér og hafir vit á því að smjaðra fyrir þeim sem þú þarft að heilla. Smjaður er kannski leiðinlegt orð, en það er í raun og veru hrós og þó þú viljir það kannski ekki, lætur það þér líða miklu betur ef þú hrósar þeim sem þú vilt öðlast virðingu eða aðdáun frá. Þetta er athyglisverður tími sem gefur þér líka extra athygli frá ólíkum hópum fólks svo taktu meira þátt í lífinu og láttu þig ekki komast upp með það að vera bara heima og hanga í engu, því af engu verður ekkert. Þú ert svo miklu mikilvægari en þú sjálfur heldur og hvert unnið verk, hvort sem er smátt eða stórt er persónulegur ávinningur sem eflir stolt þitt og þú getur verið montinn af sjálfum þér. Mamma mín heitin var Ljón og dóttir mín er það líka, og mamma sagði alltaf við nöfnu sína Sigrúnu, temdu í þér Ljónið þá færðu það sem þú vilt, og það er setningin til þín elskan mín. Knús og faðmlag, þín Sigga KlingFræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari, Agent Fresco, Ana Mafalda, besta húshjálp í heimi, Sema Erla Serdar, baráttukona, Rósa Ingólfsdóttir, sjónvarpskona, Anton Máni Svansson, kvikmyndaframleiðandi, Hulk.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira