Innlent

Gert að ákæra lögreglumann vegna harkalegrar handtöku

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Hamborgarabúllan í Kópavogi þar sem hin harkalega handtaka fór fram.
Hamborgarabúllan í Kópavogi þar sem hin harkalega handtaka fór fram. Vísir/eyþór
Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvörðun Héraðssaksóknara í máli lögreglumanns sem handtók mann við Hamborgarabúlluna í Kópavogi síðastliðið vor. Hinn handtekni tvífótbrotnaði við handtökuna.

„Þetta kemur ekki á óvart enda borðleggjandi að mínu mati og ánægjulegt fyrir minn mann,“ segir Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmaður hins handtekna. Aðspurður segir Ómar manninn farinn til Póllands en hann er pólskur borgari og missti vinnuna hér á landi eftir atvikið enda óvinnufær. Hann fer fram á tæpar sjö milljónir í skaða- og miskabætur en hann er enn að ná sér af meiðslunum og hefur verið óvinnufær í tæpt ár, eða frá því atvikið átti sér stað.

Hinn handtekni kærði tvo lögregluþjóna, mann og konu, sem kölluð voru að veitingastaðnum vegna drykkjuláta. Samkvæmt framburði vitna gekk lögregla fram af mikilli hörku, kylfum hafi verið beitt og bílhurð lögreglubíls skellt margsinnis á fætur hins handtekna með þeim afleiðingum að hann tvífótbrotnaði.

Við rannsókn málsins var leitað til réttarmeinafræðings sem taldi bæði mögulegt og líklegt að fótbrotið hefði hlotist af því að hurð hefði verið skellt á fætur sem voru á milli hurðar og dyrakarms.

Gat ekki þulið upp kennitöluna

Þrátt fyrir að héraðssaksóknari teldi gögn málsins benda til að gæta hefði mátt betur að meðalhófi í störfum á vettvangi, mat hann það svo að ekki væru nægar líkur á sakfellingu í málinu, þar sem gögn málsins bæru ekki með sér að lögregla hefði, af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, farið gegn lögmæltum aðferðum við handtökuna.

Kærandinn, sem hefur lagt fram tæplega sjö milljóna bótakröfu, kærði ákvörðunina til ríkissaksóknara. Í kærunni kemur meðal annars fram að kærandinn og fjölmörg vitni hafi staðfest að lögreglumenn hafi brugðist við með offorsi þegar kærandi gat ekki þulið upp kennitölu sína. „Þeir drógu hann strax í kjölfarið, járnaðan fyrir aftan bak, inn í lögreglubifreið þar sem hann lá, innan við mínútu síðar, tvífótbrotinn eftir bílhurð og lögreglukylfu,“ segir í kærunni.

Í niðurstöðu ríkissaksóknara frá því í gær er staðfest ákvörðun saksóknara um að fella málið á hendur lögreglukonunni niður en ákvörðun að því er varðar lögreglumanninn er felld úr gildi og héraðssaksóknara falið að taka mál á hendur honum til ákærumeðferðar. Í úrskurði ríkissaksóknara kemur fram að lögreglumaðurinn hafi í það minnsta sýnt af sér slíkt gáleysi við handtökuna að háttsemi hans geti talist refsiverð sbr. 132. og 219. gr. hegningarlaga.




Tengdar fréttir

Gagnrýnir ummæli Jóns H. B. Snorrasonar

"Ég held að Jón hafi ekki séð rannsóknargögn málsins og viti ekkert um málið nema það sem hann hefur frá lögreglumönnunum sjálfum,“ segir Ómar Örn.

Óvinnufær í hálft ár eftir handtökuna

Lögreglumennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa beitt harðræði við handtöku í maí voru varaðir við því að þeir myndu fótbrjóta manninn. Missti vinnuna og mun þurfa langa endurhæfingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×