Innlent

Telur einsýnt að vantrauststillaga verði lögð fram á dómsmálaráðherra

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, telur líklegt að Landsréttarmálið fari til umboðsmanns Alþingis.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, telur líklegt að Landsréttarmálið fari til umboðsmanns Alþingis. Vísir/Eyþór
„Það er réttaróvissa í landinu, virkilega alvarleg réttaróvissa,“ segir Jón Þór Ólafsson, varaformaður stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar og þingmaður Pírata, um stöðuna sem er komin upp í Landsrétti, hinu nýja dómstigi vegna vanhæfis dómara. Að mati Jóns Þórs eru líkur á að það gæti stefnt í óefni og dómar ómerktir.

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lítur málið ekki sömu augum og telur Landsréttarmálið ekki endilega eiga heima í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd.

Nefndin fundar um málið í hádeginu í dag og tekur að öllum líkindum ákvörðun um framhald málsins á Alþingi.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, segir að alvarleg réttaróvissa ríki í landinu.
„Hæstiréttur verður að líta til dóma Mannréttindadómstólsins í Strassborg. Hann er bundinn að lögum hvað þetta varðar þannig að ég myndi segja að þetta sé mjög, mjög alvarlegt mál,“ segir Jón Þór sem bendir á að málið gæti tekið þá stefnu að dómar, kveðnir upp af þeim fjórum dómurum sem dómsmálaráðherra skipti út fyrir einstaklinga sem hæfisnefnd mat hæfasta, yrðu ómerktir.

„Nú hefur Evrópudómstóllinn dæmt og EFTA-dómstóllinn var búinn að taka svona mál til sín vegna þess að það voru skipaðir í Noregi þrír dómarar þegar átti að skipa sex, ekki alvarlegra en það. Samt sem áður leiðréttu þeir stöðuna bara. Þeir vildu ekki taka sénsinn. Vildu ekki fara glannalega með sitt réttarkerfi,“ segir Jón Þór sem óttast að málið gæti farið á versta veg.

Er þetta fjarstæðukennt eins og Birgir Ármannsson sagði í stjórnmálaþættinum Silfrinu

„Það ekki fjarstæðukennt að réttaröryggi borgaranna í landinu grundvallast á því að koma á sjálfstæðum, óháðum og óvilhöllum dómstóla. Það er fjarstæðukennt þegar dómsmálaráðherra er búinn að viðurkenna það að þessir dómarar gætu verið í þakkarskuld við sig,“ segir Jón Þór og vísar til orða dómsmálaráðherra í fréttaþættinum Kveiki.

Í gærmorgun var Landsdómsmálið rætt á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en skrifstofustjóri Alþingis og lagaprófessor komu fyrir nefndina. Á fundinum gafst ekki tími til að ákveða í hvaða farveg málið færi en Jón Þór og Birgir Ármannsson segja líklegt að niðurstaða fáist í málið von bráðar.

„Alveg ljóst að ábyrgðin er hennar“ 

Jón Þór segir að á fundinum í gær hafi ábyrgð ráðherra verið rædd í þaula. Hann segir lög um dómstóla binda hendur þingmanna og þar með er ábyrgð dómsmálaráðherra undirstrikuð.

„Ráðherra leggur fram tillögu inn í þingið. Tillögurnar eru síðan bornar upp sem þingsályktun eða meðhöndlaðar eins og þingsályktun og í lögum um þingsköp er alveg skýrt að ég get lagt fram breytingartillögur en dómstólalögin banna mér það. Það stendur skýrt að það megi ekki gera það þannig. Það eina sem þingið getur sagt er já eða nei þannig að ráðherra fær aldrei í hendurnar frá þinginu tillögu sem er öðruvísi heldur en hún sjálf setti inn til þingsins þannig að hún getur aldrei fengið neitt í hendurnar sem hún er ekki samþykk. Hún er aldrei þvinguð til þess að samþykkja neitt sem hún er ekki samþykk þannig að það er alveg ljóst að ábyrgðin er hennar,“ segir Jón Þór. 

Einsýnt að vantrauststillaga verði borin fram

Finnst þér líklegt að málinu verði vísað til umboðsmanns Alþingis?

„Mér þykir líklegt að það fari til umboðsmanns. Það þarf bara að gera þetta málefnalega og að allir krókar og kimar í málinu séu skoðaðir. Þegar vantrauststillagan verður borin fram– sem mér þykir einsýnt að verði – að þá sé það þannig gert að öll gögn í málinu liggi fyrir og hafi legið fyrir í góðan tíma fyrir þingmenn til að taka vel upplýsta ákvörðun um ábyrgð dómsmálaráðherra.“

„Ég upplifi þetta ekki með sama hætti og Jón Þór“ 

Birgir Ármannsson er á öndverðum meiði við Jón Þór.  „Ég er ekki sammála honum en hins vegar, það á auðvitað eftir að koma niðurstaða úr þeim málum sem snúa að dómstólum í því sambandi en ég upplifi þetta ekki með sama hætti og Jón Þór.“

Í hvaða farveg finnst þér ákjósanlegt að málið færi?

„Nú er það auðvitað þannig að stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd þingsins þarf að átta sig á því hvert hennar hlutverk á að vera í þessu sambandi. Umræður í nefndinni hafa að stórum hluta til verið á almennum nótum fram að þessu og þegar að fjallað hefur verið um mál fyrir dómstólum og komist að niðurstöðu þar þá er auðvitað ljóst að mjög margt af því sem snýr að eftirliti þingsins er einfaldlega komið fram og niðurstaða komin í því þannig að ég átta mig ekki alveg á því á þessari stundu hvað menn ætla að rannsaka frekar á vettvangi þingnefndarinnar,“ segir Birgir.



Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, telur Landsréttarmálið ekki endilega vera verkefni stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar.vísir/vilhelm
En gæti ekki komið upp flókin og alvarleg staða?  

„Þá er það úrlausnarefni sem vissulega þarf að takast á við en hins vegar eru málin ekki á því stigi að það beinlínis snerti viðfangsefni þessarar nefndar frekar en annarrar. Það er auðvitað þá orðið mál sem stjórnvöld á Þingi þurfa að velta fyrir sér en þegar við erum að fjalla um, hvað eigum við að segja, verkefni þessarar nefndar þá þurfa menn að móta hvaða verkefni eiga heima þar og hver annars staðar.“ 

Birgir segir að í ljósi þess að það sé frekar undantekning en regla að helstu álitamálin í málinu hafi þegar farið fyrir dómstóla sé ekki þörf á því að málið sé rætt í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd. 

Sá dómur sem kveðinn var upp var ekki dómsmálaráðherra í vil, er þá ekki eðlilegt að það sé framhald á málinu?

„Já, við erum að velta því fyrir okkur hvernig það er best gert. Ef málið snýst um það að einhverjir telja að það sé ástæða til að bera fram vantraust á ráðherrann sem hefur komið fram í ummælum Jóns Þórs og fleiri, þá er það ekki verkefni þessarar nefndar að fjalla um það, þá er það verkefni þingsins alls,“ segir Birgir.

Fundurinn verður haldinn klukkan 12.30 en þeir Birgir og Jón Þór telja mjög líklegt að næstu skref verði ákveðin.


Tengdar fréttir

Jón Þór útilokar ekki vantrauststillögu

Jón Þór Ólafsson og Jón Steindór Valdimarsson voru gestir Heimis Más í Víglínunni á Stöð 2 í dag. Þeir ræddu dómsmál landsins og Jón Þór útilokar ekki að lögð verið fram vantrauststillaga á hendur Sigríði Andersen dómsmálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×