Maradona segir Messi ekki vera leiðtoga Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2018 23:00 Diego Maradona sparar sjaldan stóru orðin. Vísir/Getty
Fótboltagoðsögnin Diego Maradona gagnrýnir samlanda sinn Lionel Messi harðlega í viðtali við Fox og segir hann ekki vera leiðtoga og að ekki ætti að líta á hann sem guð í fótboltaheiminum. Maradona er ekki beint þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og gerir það heldur ekki í þetta sinn. Hann, líkt og Messi, er af flestum talinn vera einn af bestu knattspyrnumönnum sögunnar. Í viðtalinu segir Maradona að Messi sé ekki sami leikmaðurinn þegar hann leikur með Barcelona og Argentínu. „Messi er Messi þegar hann klæðist treyju Barcelona en annar Messi þegar hann leikur með Argentínu. Hann er frábær leikmaður en enginn leiðtogi. Áður en hann talar við leikmennina og þjálfarann vill hann vera í Playstation. Á vellinum vill hann síðan vera leiðtogi. Það er tilgangslaust að gera mann að leiðtoga sem fer á klósettið 20 sinnum fyrir leik.“Messi er 31 árs en hefur ekki tekist að vinna heimsmeistaratitil með Argentínu líkt og Maradona gerði árið 1986 í Mexíkó. Messi tók sér frí með landsliðinu eftir HM í Rússlandi í sumar. „Ég myndi ekki hringja í hann núna en maður á aldrei að segja aldrei. Hann er bestur í heimi ásamt Cristiano Ronaldo en við verðum að losa hann undan pressunni,“ bætti Maradona við en hann er nú þjálfari mexíkóska 2.deildar liðsins Dorados.
Fótbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Tekinn við Portúgal og gæti stýrt Ronaldo á nýjan leik Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Sjá meira