Stefán Hilmarsson, tónlistarmaður, var útnefndur bæjarlistamaður Kópavogs 2018 við athöfn í Gerðasafni í dag. Stefán er landsmönnum að góðu kunnur enda hefur hann starfað við tónlist meira og minna frá tvítugsaldri og verið í þrjátíu ár í einni vinsælustu hljómsveit landsins, Sálinni hans Jóns míns.
Í samtali við Vísi segist Stefán ekki vera innfæddur Kópavogsbúi en hann hefur búið í Kópavogi í ríflega 20 ár.
Og kannt vel við þig?
„Já, virkilega vel. Þetta kom nú ekki til af góðu að við fluttum hingað. Við hjónin vorum Reykvíkingar og fundum ekkert í Reykjavík en það var nóg framboð hér á þeim tíma, en þessi staða er að mörgu leyti svipuð í dag. Uppbyggingin hefur náttúrulega verið mjög mikil og það hefur verið gaman að fylgjast með Kópavogi stækka og styrkjast síðan við fluttum hingað,“ segir Stefán.
Aðspurður hvort það komi honum á óvart að vera útnefndur bæjarlistamaður segir hann svo vera.
„Já, svona kemur manni alltaf á óvart. Maður gerir nú aldrei ráð fyrir neinu svona en þetta kemur skemmtilega á óvart og maður verður að reyna að standa undir nafnbótinni. Vonandi gengur það.“
Á meðal þess sem Stefán hyggst gera í tengslum við það að vera bæjarlistamaður Kópavogs er að sinna eldri borgurum í bænum og eiga svo samstarf við æskuna.
„Mig langar að sinna eldri borgurum og gera þeim glaðan dag með ókeypis tónleikum í Salnum. Svo er hugmyndin að eiga samstarf við þá yngri og eiga þá skapandi samstarf með nemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs, jafnvel fá þá til að spila með mér á tónleikum. Ein hugmyndin er líka að standa fyrir einhvers konar sönglagakeppni og græja út eitt lag úr ranni nemenda sem ég myndi þá flytja á þessum tónleikum,“ segir Stefán.
Sálin hans Jóns míns fagnar síðan 30 ára afmæli í ár. Stefán segir að í sumar verði tónleikar í tilefni afmælisins á Græna hattinum á Akureyri og síðan verða viðhafnartónleikar þann 20. október næstkomandi í Hörpu.
Stefán Hilmarsson bæjarlistamaður Kópavogs
