Sextánfalda framleiðslugetuna Svavar Hávarðsson skrifar 10. mars 2017 07:00 Kísillinn sem geoSilica framleiðir er nauðsynlegur fyrir bein.
Nýsköpunarfyrirtækið geoSilica á Ásbrú í Reykjanesbæ er að leggja lokahönd á framkvæmdir til að sextánfalda framleiðslugetu fyrirtækisins. GeoSilica framleiðir kísilsteinefni úr jarðhitavatni frá Hellisheiðarvirkjun, náttúrulegt steinefni í vökvaformi sem er selt á markaði fyrir heilsuvörur. Metsala hjá fyrirtækinu undanfarna mánuði kallaði á framkvæmdir. Ágústa Valgeirsdóttir, verkefna- og viðskiptaþróunarstjóri geoSilica, segir að þegar sé byrjað að selja kísilsteinefni geoSilica hjá Amazon í Bandaríkjunum, og er fyrirtækið í viðræðum við nokkra aðra aðila um dreifingu á vörum fyrirtækisins erlendis – til dæmis í Finnlandi og Þýskalandi.Ágústa Valgeirsdóttir „Hlutirnir eru að gerast hratt hjá okkur. Við viljum tryggja að þegar okkur berst stór pöntun þá getum við brugðist við henni, sérstaklega frá erlendum mörkuðum. Við erum í raun að búa í haginn fyrir framtíðina,“ segir Ágústa. Kísilsteinefnið, fyrsta vara geoSilica, kom fyrst á markað í lok árs 2014. Haustið 2012 hafði fyrirtækið fengið verkefnastyrk Tækniþróunarsjóðs, til að hefja vinnu við rannsóknir og þróun á vörunni. Sama ár hófst starfsemi við Hellisheiðarvirkjun til að nýta skiljuvatn virkjunarinnar. Sú starfsemi hefur farið fram í samstarfi við Orku náttúrunnar, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, en einnig fékkst styrkur frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og fleirum.Fyrirtækið hefur nú komið upp fjórum átta þúsund lítra tönkum sem tryggir fyrirtækinu næga framleiðslugetu bæði fyrir íslenskan og erlendan markað. Laga þurfti tankana að framleiðsluaðferðum geoSilica. „Framleiðslan okkar er öll á Hellisheiði. Þar erum við með ný tæki sem við fjárfestum í líka og allt verður klárt á mánudaginn. Við erum við hliðina á skiljustöðinni á Hellisheiði og fáum vökvann beint frá virkjuninni – þegar við fáum hráefni okkar þá er það 120 gráðu heit gufa, sem fer í gegnum varmaskipti og er kæld. Í þessum tönkum bíður vatnið áður en við hefjum framleiðslu,“ segir Ágústa og bætir við að framleiðslugetan fyrir stækkun hafi verið um þúsund lítrar á tíu til fimmtán dögum. „Það er svo fyrirtækið PharmaArctica á Grenivík sem tappar á fyrir okkur. Þetta er eina fyrirtækið á Íslandi sem er með lyfjavottaða ferla hjá sér og sér um frágang á mjög miklu af fæðubótarefnum, húðvörum og slíku hér á landi. Gæðaferlarnir hjá okkur krefjast þess að þau á Grenivík sjái um þennan hluta framleiðslunnar,“ segir Ágústa. Markaðurinn fyrir heilsuvörur er gríðarstór. Kísillinn (silica) sem geoSilica framleiðir í vökvaformi mætir því harðri samkeppni sem ríkir á markaði fyrir fæðubótarvörur. Hins vegar sér fyrirtækið tækifæri í því að bjóða 100% náttúrulegt steinefni, en slíkar vörur eru ekki algengar í dag – hvað þá á drykkjarformi sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. „Það eru margir að spá í uppruna vörunnar og hvernig hún nýtist við inntöku í líkamanum. Þar teljum við okkur vera sterk í samkeppni,“ segir Ágústa.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira