Lætur gott af sér leiða með tónleikum á afmælinu Guðný Hrönn skrifar 17. nóvember 2017 09:30 Eiríkur fagnar 70 ára afmæli og 55 ára söngafmæli um þessar mundir.
Þegar ég fór að hugsa um þetta í sumar, þegar það fór að líða að þessum tímamótum, þá fór ég að velta fyrir mér að það eru ekki allir jafn heppnir og ég,“ segir Eiríkur Grímsson sem á 70 ára afmæli á mánudaginn. Í tilefni þess heldur hann glæsilega styrktartónleika á sunnudaginn undir yfirskriftinni Yndislegt líf. Hann kveðst hafa átt yndislegt líf, þó ekki áfallalaust eins og gengur og gerist.„Mér datt nú í hug að nota þessi tímamót til að gera eitthvað, gefa mér eitthvað í afmælisgjöf, og sömuleiðis að láta eitthvað gott af mér leiða í þágu þeirra sem minna mega sín.“ Ágóði tónleikanna rennur til Umhyggju, félags langveikra barna. Eiríkur segir það félag vera stórmerkilegt og hann langar að leggja því lið. Á tónleikunum kemur fram tónlistarfólk sem Eiríkur hefur kynnst á tónlistarferli sínum. Þau sem fram koma eru Margrét Einarsdóttir, Ópus 12, Einar Clausen, Söngfuglar, Viðar Gunnarsson, Kammerkór Reykjavíkur, Þrjár klassískar, Söngfjelagið Góðir grannar, Ólafur M. Magnússon, Húnakórinn, Signý Sæmundsdóttir og Karlakór Kjalnesinga. Spurður út í hvernig hafi gengið að setja saman tónleika segir Eiríkur: „Það gekk alveg frábærlega. Ég kom alls staðar að opnum dyrum. Ég er búinn að vera í söng í 55 ár núna, ég er nefnilega að halda upp á 55 ára söngafmæli um þessar mundir. Og ég hafði samband við þá sem ég hef sungið með og tengst í gegnum tónlistina og fékk frábærar móttökur,“ segir Eiríkur sem byrjaði að syngja með Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps þegar hann var 15 ára. Síðan þá hefur hann sungið með ýmsum kórum. Eiríkur hvetur alla tónlistarunnendur til að leggja leið sína í Langholtskirkju á sunnudaginn, 19. nóvember. „Tónleikarnir hefast klukkan 16.00 og hægt er að kaupa miða við innganginn í Langholtskirkju. Miðaverðið er afskaplega hófstillt, nánast útsöluprís, eða 2.500 krónur,“ segir Eiríkur glaður í bragði.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira