Söfnun sett af stað fyrir litlu hetjuna Jökul Mána: „Við erum afar þakklát“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. ágúst 2017 16:00 Jökull Máni fer á næstu mánuðum í hjartaaðgerð í Svíþjóð. Anna Baldvina
Jökull Máni Nökkvason fæddist þann 14.júlí síðastliðinn, sjö vikum fyrir tímann. Jökull Máni var aðeins 1688 grömm þegar hann kom í heiminn, tæpar 7 merkur, og var því bæði fyrirburi og léttburi. Litli drengurinn er bæði með Downs heilkenni og hjartagalla svo hans bíður hjartaaðgerð í Svíþjóð. Foreldrar Jökuls Mána eru þau Anna Baldvina og Nökkvi Már Víðisson en sett hefur verið af stað söfnun fyrir fjölskylduna. „Það er alveg ótrúlegt hvað það eru margir sem hugsa vel til okkar og hafa styrkt okkur og við erum afar þakklát þeim og stelpunum sem standa á bak við þessa söfnun,“ segir Anna Baldvina í samtali við Vísi. Hún segir að Jökull Máni sé fullkomin lítil hetja. „Hann stendur sig ekkert smá vel og er hörkuduglegur, ákveðinn og endalaust að koma öllum á óvart.“Anna BaldvinaJökull Máni þarf að hafa náð fjórum kílóum að þyngd til þess að mega fara í hjartaaðgerðina sem verður gerð í Lundi í Svíþjóð. Talið er að það geti tekið hann um það bil sex mánuði en hann er í dag mánaðar gamall og rúm tvö kíló. Það er því ljóst að hann mun dvelja ásamt foreldrum sínum á Vökudeild og síðar á Barnaspítala Hringsins í langan tíma, að minnsta kosti þar til hann kemst út í aðgerðina. Þær Anna Guðrún Guðjónsdóttir og Sonja Finnsdóttir standa fyrir söfnun fyrir fjölskylduna..Reikningsnúmerið er 0115-05-063111 og er reikningurinn á nafni Önnu Baldvinu, kennitala 270198-3179. „Við ákváðum að stofna þessa styrktarsíðu einfaldlega vegna þess að okkur langaði til þess að hjálpa þeim Önnu Baldvinu og Nökkva Má, vinum okkar en við vorum einmitt með Nökkva í skóla. Við vitum að það er langur og krefjandi tími framundan hjá þeim en þau eru bæði ung, 19 og 20 ára og þetta er þeirra fyrsta barn. Okkur fannst sjálfsagt að reyna að gera eitthvað sem gæti auðveldað þeim að takast á við þetta mikla verkefni,“ segir Sonja í samtali við Vísi. Einnig verður haldið styrktarhlaup fyrir Jökul Mána þar sem fólki gefst kostur að styrkja söfnunina.
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira