Manchester United mistókst að tryggja sér sigur í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld þegar að liðið tapaði fyrir svissnesku meisturunum í Basel, 1-0, á útivelli.
Eina mark leiksins skoraði Michael Lang á 89. mínútu en hann laumaði sér á fjærstöngina þar sem Daley Blind gleymdi sér og skoraði sigurmarkið.
United þurfti aðeins eitt stig til að vinna riðilinn en það var komið áfram í 16 liða úrslitin fyrir leikinn. Það þarf sömuleiðis aðeins eitt stig á móti CSKA Moskvu á útivelli í lokaumferðinni heima til að vinna A-riðilinn.
Basel sækir Benfica heim í lokaumferðinni og þarf að ná betri úrslitum en CSKA til að komast í 16 liða úrslitin.
