Yfirvöld Háskóla í Lundúnum viðurkenna að þau skoði tölvupóst nemenda nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 22. janúar 2017 11:17 King's College er leiðandi háskóli á sviði læknavísinda.
Virtur háskóli í Lundúnum hefur viðurkennt að skólayfirvöld skoði tölvupósta bæði nemenda og starfsfólks skólans. Independent greinir frá. Háskólinn sem um ræðir er King‘s College London og er einn níu skóla sem tilheyra Háskólanum í Lundúnum. King‘s College London er í 63. sæti í akademískri röðun háskóla. Athugun skólans á tölvupósti nema og kennara er liður í aðgerðum yfirvalda til þess að sporna gegn uppgangi öfgahópa. Aðgerðirnar, sem á ensku kallast Prevent, er hluti af stærri áætlun gegn hryðjuverkum sem komið var á fót árið 2003. Á innskráningarsíðu tölvupóstkerfis skólans eru notendur varaðir við því að möguleiki sé á að fylgst sé með tölvupósti þeirra eða þeir vistaðir. Stúdentaráð skólans hefur gagnrýnt aðgerðir yfirvalda og telur að um trúnaðarbrot sé að ræða. „Nemar sem hafa ekki framið glæpi eru meðhöndlaðir líkt og um grunaða glæpamenn væri að ræða,“ sagði í yfirlýsingu frá ráðinu. Landsamtök stúdenta í Bretlandi hafa einnig fordæmt aðgerðirnar. Forseti samtakanna fullyrti að þær kyntu undir hræðslu og fordóma í garð múslima. „Þetta er enn eitt dæmið um hvernig Prevent-aðgerðunum tekst að snúa menntastofnunum þessa lands gegn nemendum þeirra.“ Að sögn yfirvalda eru aðgerðirnar ekki óeðlilegar og gáfu þau í skyn að samskonar framferði tíðkaðist jafnframt innan veggja fleiri stofnana.
Mest lesið Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira