Ísland er komið yfir í leik sínum gegn Kína í China Cup-keppninni sem fer fram í Nanning í Kína. Kjartan Henry Finnbogason skoraði markið á 64. mínútu.
Björn Daníel Sverrisson átti stóran þátt í markinu. Hann fékk sendingu inn í teig og var móttakan hans glæsileg. Hann náði að snúa sér að marki og eiga skot sem markvörður Kínverja varði, beint fyrir fætur Kjartans Henrys sem skoraði auðvelt mark.
Kínverjar voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en okkar menn komu sér betur inn í leikinn eftir því sem leið á síðari hálfleik.
Fylgstu með beinni textalýsingu hér fyrir neðan.
Sjáðu glæsilegan snúning Björns Daníels er Ísland komst yfir
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mest lesið

Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika
Íslenski boltinn




Halldór: Sundur spiluðum Fram
Fótbolti



Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga
Íslenski boltinn


Uppgjörið: Breiðablik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópavogi
Íslenski boltinn