Norður-Kórea framkvæmir enn eina eldflaugatilraunina Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 28. apríl 2017 21:54 Frá annari eldflaugatilraun í Norður-Kóreu á dögunum Vísir/EPA
Hernaðaryfirvöld í Norður-Kóreu reyndu í dag að sprengja flugskeyti í tilraunarskyni en án árangurs. Þetta segja yfirvöld í Suður-Kóreu. BBC greinir frá. Ekki er vitað af hvaða tegund eldflaugin er, eða hversu langt hún hefur drifið. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa ekki tjáð sig um málið. Fyrr í dag biðlaði Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til alþjóðasamfélagsins að aðstoða við að þvinga Norður-Kóreu til að hætta öllum eldflauga- og kjarnorkutilraunum. Gríðarleg spenna er á Kóreuskaga um þessar mundir og miklar heræfingar hafa farið fram beggja vegna landamæra Kóreuríkjanna undanfarna daga. Samkvæmt fréttastofu Reuters mistókst tilraunin sem gerð var í dag. Yfirvöld Norður-Kóreu hafa sett sér að markmiði að koma fyrir svokölluðum „kjarnaoddi“ (nuclear warhead) á langdræga eldflaug (ICBM), sem næði til skotmarka um allan heim. Þá hafa yfirvöld framkvæmt fimm kjarnorkutilraunir á undanförnum árum auk þess sem eldflaugum hefur ítrekað verið skotið á loft. Stjórnvöld Kína hafa varað stjórnendur Norður-Kóreu við því að framkvæma frekari kjarnorkuvopnatilraunir. Ef það yrði gert myndu Kínverjar beita einræðisríkið viðskiptaþvingunum.
Norður-Kórea Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira