Þriðji stjóri Gylfa sem er rekinn á aðeins þrettán mánuðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2017 13:15 Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton spila ekki lengur undir stjórn hollenska knattspyrnustjórans Ronaldo Koeman. Hann þurfti að taka pokann sinn í dag. Gylfi ætti að vera farinn þekkja það vel að stjóri hans sé rekinn því þetta er í þriðja sinn á þrettán mánuðum og í fjórða sinn á innan við tveimur árum sem knattspyrnustjóri Gylfa er rekinn. Gylfi náði aðeins að spila í tvo mánuði undir stjórn Ronaldo Koeman sem keypti hann frá Swansea City í lok ágúst. Everton situr í fallsæti eftir níu umferðir með aðeins átta stig og sjö mörk skoruð. Lokaleikurinn var 5-2 tap á heimavelli á móti Arsenal um helgina en Everton hefur aðeins fagnað sigri í einum deildarleik frá því í ágúst. Á síðustu leiktíð spilaði Gylfi fyrir fjóra stjóra hjá Swansea City. Tímabilið byrjaði undir stjórn Francesco Guidolin sem var rekinn 3. október. Þá tók Bandaríkjamaðurinn Bob Bradley við en hann var rekinn í lok desember. Alan Curtis stýrði þá Swansea-liðinu tímabundið þar til að Paul Clement var ráðinn knattspyrnustjóri í byrjun janúar. Tímabilið á undan var Garry Monk rekinn sem knattspyrnustjóri Swansea í desember 2015. Gylfi náði að spila í 570 daga fyrir hann. Gylfi lék einnig með Tottenham þegar André Villas-Boas var rekinn í desember 2013.Fjórir knattspyrnustjórar Gylfa hafa því misst starfið sitt á aðeins 22 mánuðum eins og sjá má á listanum hér fyrir neðan. 9. desember 2015 - Garry Monk, Swansea (stjóri Gylfa í 570 daga) 3. október 2016 - Francesco Guidolin, Swansea (stjóri Gylfa í 259 daga) 27. desember 2016 - Bob Bradley, Swansea (stjóri Gylfa í 85 daga) 23. Október 2017 - Ronaldo Koeman, Everton (stjóri Gylfa í 68 daga)
Enski boltinn Mest lesið Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Bjarki Már til franska stórveldisins Handbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Fleiri fréttir Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sjá meira