Fótbolti

Sjáðu mörkin hans Gylfa í sigri Íslands á Úkraínu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í 2-0 sigri á Úkraínu í undankeppni Heimsmeistaramótsins í Rússlandi á Laugardalsvelli í kvöld. Mörkin má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Sjá einnig: Umfjöllun: Ísland - Úkraína 2-0 | Stórkostlegur seinni hálfleikur og sigur á Úkraínumönnum

Gylfi Þór er nú kominn með 17 landsliðsmörk fyrir Ísland og eru aðeins Kolbeinn Sigþórsson og Eiður Smári Guðjohnsen með fleiri mörk en Gylfi í bláu treyjunni.

Ísland er jafnt Króatíu að stigum á toppi I-riðils eftir úrslit kvöldsins og bíða tveir mikilvægir leikir gegn Tyrklandi og Kósóvó í október þar sem úrslit riðilsins ráðast.


Tengdar fréttir

Twitter: VIP-liðið missti af markinu

Ísland karlalandsliðið í knattspyrnu leiðir 1-0 gegn Úkraínu í undankeppni HM í knattspyrnu. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði markið eftir fyrirgjöf Emils Hallfreðssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×