Menning

Fórn – No Tomorrow valin sýning ársins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Margrét Bjarnadóttir og Ragnar Kjartansson eru höfundar sýningar ársins 2017.
Margrét Bjarnadóttir og Ragnar Kjartansson eru höfundar sýningar ársins 2017. vísir/gva
Dansverkið Fórn – No Tomorrow í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins var valin sýning ársins 2017 á Grímunni, íslensku sviðslistaverðlaununum, sem afhent voru í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þá hlutu þau Margrét Bjarnadóttir og Ragnar Kjartansson verðlaun sem danshöfundar ársins fyrir Fórn – No Tomorrow.

Garðar Cortes hlaut heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands.

Leikrit ársins var valið Sóley Rós ræstitæknir eftir þær Maríu Reyndal og Sólveigu Guðmundsdóttur í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps. Sólveig fór jafnframt með aðalhlutverkið í verkinu og hlaut hún Grímuna sem leikkona ársins í aðalhlutverki.

Una Þorleifsdóttir hlaut verðlaun sem leikstjóri ársins fyrir sýninguna Gott fólk í sviðsetningu Þjóðleikhússins og Stefán Hallur Stefánsson hlaut verðlaun sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Góðu fólki.

Barnasýning ársins var valin Blái hnötturinn í sviðsetningu Borgarleikhússins en lista yfir alla þá sem unnu Grímuna í kvöld má sjá hér fyrir neðan.

 

Sýning ársins 2017

Fórn – No Tomorrow

í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins

 

Leikrit ársins 2017  

Sóley Rós ræstitæknir

eftir Maríu Reyndal og Sólveigu Guðmundsdóttur

í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps

Leikstjóri ársins 2017

Una Þorleifsdóttir

fyrir Gott fólk

í sviðsetningu Þjóðleikhússins

Leikari ársins 2017 í aðalhlutverki

Stefán Hallur Stefánsson

fyrir Gott fólk

í sviðsetningu Þjóðleikhússins

Leikkona ársins 2017 í aðalhlutverki

Sólveig Guðmundsdóttir

fyrir Sóley Rós ræstitæknir

í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps

Leikari ársins 2017 í aukahlutverki

Björn Hlynur Haraldsson

fyrir Óþelló

í sviðsetningu Þjóðleikhússins

Leikkona ársins 2017  í aukahlutverki

Kristbjörg Kjeld

fyrir Húsið

í sviðsetningu Þjóðleikhússins

Leikmynd ársins 2017  

Ilmur Stefánsdóttir

fyrir Bláa hnöttinn

í sviðsetningu Borgarleikhússins

Búningar ársins 2017  

Stefanía Adolfsdóttir

fyrir Elly

í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports

Lýsing ársins 2017

Björn Bergsteinn Guðmundsson

fyrir Fórn - Shrine

í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins

Tónlist ársins 2017  

Kristjana Stefánsdóttir

fyrir Bláa hnöttinn

í sviðsetningu Borgarleikhússins

Hljóðmynd ársins 2017  

Sveinbjörn Thorarensen

fyrir Da Da Dans

í sviðsetningu Íslenska dansflokksins

 

Söngvari ársins 2017

Katrín Halldóra Sigurðardóttir

fyrir Elly

í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports

Dans – og sviðshreyfingar ársins 2017

Chantelle Carey

fyrir Bláa hnöttinn

í sviðsetningu Borgarleikhússins

Dansari ársins 2017  

Katrín Gunnarsdóttir

fyrir Shades of History

Í sviðsetningu Katrínar Gunnarsdóttur, Tjarnarbíós og Reykjavík Dance Festival

Danshöfundur ársins 2017  

Margrét Bjarnadóttir og Ragnar Kjartansson

fyrir Fórn - No Tomorrow

Í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins

Útvarpsverk ársins 2017  

Lifun

eftir Jón Atli Jónasson

Í sviðsetningu Útvarpsleikhússins - RÚV

 

Sproti ársins 2017

Gréta Kristín Ómarsdóttir

Barnasýning ársins 2017

Blái hnötturinn

eftir Andra Snæ Magnason

í leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar

Sviðsetning – Borgarleikhúsið

 

Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands 2017  

Garðar Cortes






Fleiri fréttir

Sjá meira


×