Lífið

Svala náði ekki að heilla blaðamenn á seinni æfingunni: Telja afar ólíklegt að hún komist í úrslit

Birgir Olgeirsson skrifar
Svala á sviði í Kænugarði.
Svala á sviði í Kænugarði. Eurovision
Blaðamenn sem fylgjast með undirbúningi söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í Úkraínu spá Svölu ekki upp úr fyrra undankvöldi keppninnar sem fer fram í Kænugarði næstkomandi þriðjudagskvöld.

Þetta kemur fram á Eurovision-vefnum ESC Today en þar gefa 35 blaðamenn framlög hverrar þjóðar einkunn. Þeir mega veita þremur lögum stig. Það sem er í uppáhaldi hjá hverjum blaðamanni fær fimm stig, næsta fær þrjú og það þriðja fær eitt stig.

Hvert lag getur fengið að hámarki 175 stig en metið er 119 stig sem Úkraína fékk í fyrra.

Tekið er fram á vef ESC Today að þessi könnun valdi 18 af þeim 20 þjóðum sem komust áfram í úrslitin í fyrra og var með fyrstu þær þrjár þjóðir sem höfnuðu í efsta sæti einnig í efstu sætum könnunarinnar, Úkraínu, Ástralíu og Rússland.

Svala fékk lága einkunn eftir fyrri æfinguna en einnig voru greidd atkvæði eftir seinni æfinguna og náði Svala heldur ekki að heilla þessa blaðamenn á henni. Hún fær ellefu stig í heildina og er talin afar ólíkleg til að komast í úrslit Eurovision.

Er henni spáð fimmtánda sætinu í sínum undanriðli en fulltrúi Armeníu fékk langflest stig, 100 talsins, næst Finnland með 72 stig og svo Moldóvía með 69 stig.

Fréttastofa 365 verður með ítarlega umfjöllun frá Eurovision í Kænugarði næstu daga. Fréttamennirnir Stefán Árni Pálsson og Benedikt Bóas Hinriksson verða með umfjöllun hér á Vísi, Stöð 2, Fréttablaðinu og á Bylgjunni á hverjum degi í gegnum alla keppnina. Þá verður sérstakur vefþáttur á Vísi alla dagana og hefur sá þáttur fengið nafnið Júrógarðurinn.

Hægt verður að fylgjast með ævintýrum Stefáns og Benedikts í Kænugarði á Twitter-reikningi Lífsins og á Snapchat-reikningi 365 sem heitir einfaldlega Snap-365.

Við minnum líka lesendur á að fylgjast með Facebook-síðu Lífsins, Facebook-síðu Vísis og Twitter-reikningi Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×