Lífið

Þakkar íslensku þjóðinni fyrir stuðninginn: „Hef bara engan tíma fyrir stress“

Benedikt Bóas og Stefán Árni Pálsson skrifa
Svala er klár í slaginn.
Svala er klár í slaginn.
„Ég er svo spennt og get ekki beðið eftir því að fara á sviðið,“ segir Svala Björgvinsdóttir sem stígur á sviðið í Alþjóðlegu sýningarhöllinni í Kænugarði í kvöld. Hún tekur þá lagið Paper á fyrra undanúrslitakvöldinu.

„Maður er bara komin í svo mikinn fíling og ég er núna búin að æfa þetta svo oft. Þannig að núna líður manni bara rosalega vel á sviðinu. Ég er líka alltaf svo peppuð þegar ég stíg á sviðið því að vinir mínir frá Moldóvíu eru á undan mér, og það er svo mega mikið stuðlag að ég er alltaf komin í geðveikan gír þegar ég fer upp á svið.“

Hún segir að gærdagurinn hafi gengið mjög vel en þá söng hún á dómararennslinu sem hefur fimmtíu prósent vægi á við atkvæðagreiðslu Evrópubúa.

„Mér leið mjög vel á sviðinu og það gekk allt rosalega vel og ég var mjög ánægð eftir gærdaginn.“

Tugir milljóna munu horfa á Svölu koma fram í sjónvarpinu í kvöld en það stressar söngkonuna lítið.

„Ég hugsa ekkert um þennan fjölda. Ég hef ekkert tíma til þess því að ég er að hlusta á mig syngja, ég þarf að vinna með myndatökumanninum og passa að detta ekki og muna sporin mín. Ég hef bara engan tíma fyrir stress,“ segir Svala sem vill fá að þakka íslensku þjóðinni fyrir stuðninginn síðustu daga.

Svala söng lag sitt Paper en hún stígur á svið þrettánda í röðinni í dómararennslinu í kvöld. Svo kemur hún auðvitað fram annað kvöld og það í fyrri undanúrslitariðlinum í Eurovision-keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×