Uppfærslan nýstárleg og full af húmor þó umfjöllunarefnið sé alvarlegt Atli Ísleifsson skrifar 9. maí 2017 09:40 Gamanóperan fjallar um erfðamál og græðgi Buoso fjölskyldunnar. Mynd/Gunnar Freyr „
Það eru engir dauðir punktar í þessari klukkutímalöngu sýningu og leikgleðin geislar af þessum ungu nemendum,“ segir Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz, um óperuna Gianni Schicchi eftir Gioacomo Puccini sem óperudeild skólans mun sýna í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöld. Gamanóperan fjallar um erfðamál og græðgi Buoso fjölskyldunnar þar sem moldríkur ættfaðirinn hefur látist og fjölskyldan hefur heyrt orðróm að hann ætli sér að láta klaustri í nágrenninu eftir allar sínar eigur. Fjölskyldan leitar erfðarskránnar og kemst að því að orðrómurinn er réttur. Nú eru góð ráð dýr en Rinuccio, einn af skyldmennum hins látna, stingur upp á að leitað verði til Gianni Schicchi sem er þekktur fyrir að vera slóttugur og eftir langt þref mætir Schicchi á staðinn og upphefst mikið sjónarspil. Gunnar segir uppfærsluna vera nýstárlega og fulla af húmor þó umfjöllunarefnið sé alvarlegt eins og rifrildi um arf geta orðið. „Það er mikil kaldhæðni í þessari sýningu sem segja má að sé uppfærð yfir á okkar tíma, en líka mikill gáski og stundum gleði, þó hún reynist Buoso fjölskyldunni aðeins skammgóður vermir,“ segir Gunnar.Mynd/Gunnar FreyrÍ fréttatilkynningu frá skólanum kemur fram að uppsetning óperunnar sé mikilvægur liður í starfi skólans og endurspegli nútímaleg túlkun leikstjórans þá þjálfun sem skólinn leitast við að veita nemendum sínum. „Gianni Schicchi er eitt af lykilverkum Puccinis og verður óperan flutt á ítölsku en verður íslenskum texta varpað á skjá. Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Thor Kristinsson og hefur Antonía Hevesi verið æfingastjóri tónlistarinnar en hún leikur á báðum sýningum á slaghörpuna. Elsa Waage hefur séð um ítölskuþjálfun og Jóhann Bjarni Pálmason um lýsingu. Miðasala fer fram á midi.is en einnig er hægt að kaupa miða við innganginn á undan sýningunum á fimmtudagskvöld,“ segir í tilkynningunni en tvær sýningar verða í boði, sú fyrri klukkan 19:30 og sú síðari klukkan 21.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Sjá meira