Fyrst og fremst heiður Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 22. apríl 2017 11:15 Í aftari röð eru Fanney Hauksdóttir, Þóra Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður Lögmannshlíðar, Edda Friðgeirsdóttir og Kristinn Björnsson. Fyrir framan þau sitja Jenný Karlsdóttir og Orri Harðarson. Mynd/Ragnar Hólm
Ég lít ekki á titilinn sem pressu en hann gefur mér örugglega aðeins meira svigrúm til að vinna að ritstörfunum en annars hefði orðið. En fyrst og fremst er þetta heiður,“ segir Orri Harðarson, tónlistarmaður og rithöfundur sem er nýkjörinn bæjarlistamaður Akureyrar 2017 til 2018. Orri á að baki langan feril sem tónlistar- og hljóðversmaður. Eftir hann liggja fimm sólóplötur en þar sem plötuútgáfa hefur breyst síðustu ár hefur hann aðallega sett fókusinn á ritlistina. Hann hefur gefið út þrjár bækur, Alkasamfélagið 2008 og skáldsögurnar Stundarfró 2014 og Endurfundi 2016. Hann kveðst vera með tvær skáldsögur í kollinum og telur líklegt að önnur þeirra mótist að verulegu leyti á þessu ári, en lofar þó ekki að hún líti dagsins ljós fyrr en eftir tvö ár eða svo. „Tónlistin hefur líka alltaf fylgt mér frá því ég kom fyrst fram ellefu ára og ég fæst enn við að semja lög,“ segir Orri sem hefur búið á Akureyri um þriðjunginn af 45 ára ævi. „Konan mín er fædd hér og börnin okkar líka, svo ég fer að líta á mig sem rótgróinn Akureyring,“ segir hann. Fleiri viðurkenningar voru veittar á Akureyri á sumardaginn fyrsta. Kristinn Björnsson og Edda Friðgeirsdóttir hlutu eina úr Húsverndarsjóði fyrir viðgerðir og endurbætur á Aðalstræti 32, einu þeirra húsa sem prýða Innbæinn á Akureyri. Fanney Hauksdóttir arkitekt fékk byggingarlistarverðlaun fyrir hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð sem þykir afar vel happnað. Svo hlaut handverkskonan Jenný Karlsdóttir heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs og Akureyrarstofu fyrir að varðveita og upphefja íslenska menningararfinn, meðal annars með því að varðveita munstur sem sjá má á heimasíðunni munstur.is. Menningarfélag Akureyrar ætlar að bjóða bæjarlistamanni ár hvert að nýta sér Menningarhúsið Hof eða Samkomuhúsið sem vettvang fyrir sýningu eða annars konar uppákomu í lok starfsársins.
Menning Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira