Vantraust á rúmensku ríkisstjórnina fellt atli ísleifsson skrifar 8. febrúar 2017 13:56 Rúmenski forsætisráðherrann Sorin Grindeanu. Vísir/AFP
Forsætisráðherra Rúmeníu hefur hvatt mótmælendur í landinu til að róa sig og leggja traust sitt á ríkisstjórnina. Vantraust á hendur ríkisstjórninni var fellt í rúmenska þinginu fyrr í dag. Mörg hundruð þúsund manns hafa komið saman til mótmæla á götum rúmenskra bæja og borga síðustu vikuna til að mótmæla tilskipun stjórnarinnar sem myndi fela í sér að fjölmargir stjórnmála- og embættismenn myndu komast hjá ákæru um spillingarbrot. Tilskipunin hefur þegar verið afturkölluð, en þrátt fyrir það hafa mótmælin haldið áfram. „Ég bið ykkur að treysta þessari ríkisstjórn […] Við skuldum fólkinu, sem veittu okkur umboð í síðustu kosningum, að stýra áfram,“ sagði forsætisráðherrann Sorin Grindeanu í þingsal í morgun. Vantrausttillaga stjórnarandstöðuflokksins PNL á hendur vinstristjórn Jafnaðarmannaflokksins og stuðningsflokks hans var tekin fyrir í morgun. Þingmenn beggja stjórnarflokka, auk flokks Ungverja, UDMR, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, en saman eru flokkarnir með 61 prósent þingmanna. Helmingur þingmanna, 233 þingmenn, hefði þurft að greiða atkvæði með tillögunni til að fella stjórnina. Í frétt Afronbladet segir að um tvö þúsund stuðningsmenn stjórnarinnar hafi komið saman fyrir utan þinghúsið í höfuðborginni Búkarest til að lýsa yfir stuðningi við stjórnina. Þeir telja margir forsetann Klaus Iohannis vera landráðamann eftir að hann sagði að afturköllun tilskipunarinnar og mögulegar afsagnir ráðherra ekki vera næg viðbrögð af hálfu ríkisstjórnar. Samkvæmt flestum mælikvörðum er Rúmenía það aðildarríki ESB þar sem mest spilling ríkir.
Tengdar fréttir Fjölmenn mótmæli í Rúmeníu annan daginn í röð Þúsundir Rúmenar komu saman í dag til að mótmæla ákvörðun stjórnvalda að lækka hámarksrefsingu fyrir ákveðna gerð spillingarbrota. 2. febrúar 2017 23:44 Mikill fjöldi Rúmena komu saman til að mótmæla landlægri spillingu Tæplega 300 þúsund Rúmenar komu saman í Búkarest og víðar í kvöld til að mótmæla ákvörðun stjórnvalda að lækka hámarksrefsingu fyrir spillingarbrot. 1. febrúar 2017 23:30 Rúmenar mótmæla enn þrátt fyrir afturköllun umdeildrar tilskipunar Hálf milljón manna komu saman á götum rúmenskra bæja og borga í gærkvöldi. 6. febrúar 2017 10:12 Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Fleiri fréttir Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Sjá meira
Fjölmenn mótmæli í Rúmeníu annan daginn í röð Þúsundir Rúmenar komu saman í dag til að mótmæla ákvörðun stjórnvalda að lækka hámarksrefsingu fyrir ákveðna gerð spillingarbrota. 2. febrúar 2017 23:44
Mikill fjöldi Rúmena komu saman til að mótmæla landlægri spillingu Tæplega 300 þúsund Rúmenar komu saman í Búkarest og víðar í kvöld til að mótmæla ákvörðun stjórnvalda að lækka hámarksrefsingu fyrir spillingarbrot. 1. febrúar 2017 23:30
Rúmenar mótmæla enn þrátt fyrir afturköllun umdeildrar tilskipunar Hálf milljón manna komu saman á götum rúmenskra bæja og borga í gærkvöldi. 6. febrúar 2017 10:12