Forsætisráðherra Hollands: "Ef þér líkar ekki dvölin hér, farðu!“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. janúar 2017 20:31 Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands. vísir/afp
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir að hver sá sem hafnar gildum landsins ætti að yfirgefa landið. BBC greinir frá.„Hagaðu þér eðlilega, eða farðu“ kom meðal annars fram í auglýsingu flokks forsætisráðherrans, sem birtist í dagblöðum þar í landi í dag. Í viðtali þar sem hann var spurður nánar út í auglýsinguna, sagði Rutte að hann teldi að innflytjendur ættu að aðlagast þeim gildum sem fyrir væru í Hollandi. „Ef þér líkar ekki dvölin hér, farðu!“ Ummæli hans eru talin vera viðbrögð við auknu fylgi Frelsisflokksins og tilraun til að ná til líklegra kjósenda hans sem hafa áhyggjur af innflytjendamálum landsins. Formaður Frelsisflokksins er Geert Wilders, en flokkurinn er hallur undir þjóðernishyggju og vill meðal annars hefta för innflytjenda til landsins. Kosningarnar fara fram 15. mars næstkomandi, en Frelsisflokkurinn mælist með nánast jafn mikið fylgi í skoðanakönnunum og flokkur Rutte, sem er hinn frjálslyndi Frelsis-og lýðræðisflokkur. Wilders hefur tjáð sig um ummæli forsætisráðherrans á Twitter og segir hann að Rutte sé með orðum sínum að reyna að blekkja kjósendur. „Maðurinn sem vill opna landamæri, styður flóðbylgju flóttamanna og hælisleitanda inn í landið, Íslamsvæðingu, lýgur og blekkir.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira