Í Facebookhóp íbúa á Kjalarnesi má sjá umræðu um málið. Þar er myndum deilt af rörinu þar sem afrennslisvatn úr rotþrónni lekur út. Lyktarmengun er á svæðinu samkvæmt einum meðlimi hópsins.
Reykjavíkurborg varaði við því í lok júní að viðgerð stæði yfir á fráveitulögn á svæðinu og benti fólki á að fara ekki í fjöruna á meðan á henni stæði. Hluti af viðgerðinni var uppsetning svokallaðs bráðabirgðarörs en út frá því lekur afrennslisvatnið. Heilbrigðiseftirlitið sagði rörið ekki uppfylla skilyrði reglugerðar varðandi lengd röra í stórstreymisfjöru.

Í samtali við Vísi segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, að þeim hafi borist kvörtun í lok júní um lyktarmengun við afrennsli af rotþró sem staðsett er neðan Búagrundar á Kjalarnesi. Rotþróin hefur verið þarna lengi að sögn Ólafar og hafði lögn á svæðinu rofnað með þeim afleiðingum að afrennsli rann í fjöruna.
„Brugðist var við af hálfu Veitna og lögð bráðabirgðalögn fyrir afrennslið. Rörið var lagt eins langt út og sjávarstaða á þeim tíma leyfði. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði athugasemd við að bráðabirgðalögnin uppfyllti ekki reglugerð sem kveður á um að slíkar lagnir nái 5 m út fyrir meðal stórstraumsfjöru,“ segir í skriflegu svari Ólafar.

Veitur hafa verið með nokkrar framkvæmdir á svæðinu.
„Við erum eiginlega búin að byggja hreinsistöð á Kjalarnesi fyrir skólp sem tekin í notkun í september,“ segir Ólöf í samtali við Vísi. Þegar hún opnar í september þá verður þetta bráðabirgðarör fjarlægt, starfsemi rotþróarinnar verður hætt og staðan verði bætt.

Aðspurð hvað þau ætli að gera varðandi bráðabirgðarörið sem nú er í fjörunni og gefur frá sér vonda lykt segir Ólöf að ekki sé forsvaranlegt að lengja rörið fyrir þennan stutta tíma. Að auki megi aðeins búast við einum degi í þessum mánuði þar sem rörið mun fara upp fyrir sjávarmál þegar stórstraumsfjara verður.
Rörið verið fjarlægt við fyrsta tækifæri í september.
Breyttar vinnureglur
Meðal þess sem gagnrýnt hefur verið er að íbúar hafi ekki verið látnir vita af bráðabirgðarörinu. Ólöf segir að þegar þetta hafi komið upp, í lok júní, hafi gilt aðrar vinnureglur.
„Þetta kemur þarna upp í enda júní og við vorum að vinna eftir öðru verklagi þá. Svo kom upp Faxaskjólsmálið og við höfum breytt verklaginu síðan þá og erum að upplýsa miklu miklu meira,“ segir Ólöf.
Því hafi þau beðið íbúa Kjalarness velvirðingar á því að hafa ekki varað við þessu nægilega vel og segir Ólöf að þau séu að breyta hjá sér verkferlum hvað upplýsingagjöf varðar.
Hafa tekið sýni
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur staðfestir í skriflegu svari til Vísis að þeim hafi borist ábending þann 19. júní síðastliðinn að mengun væri í fjöru neðan við Búagrund. Heilbrigðisfulltrúar staðfestu að vökvi læki í fjöruna og tóku svokölluð gerlasýni.
„Við staðfestar niðurstöður sýnatöku, sem bárust þann 26. júní síðastliðinn, komu í ljós hækkuð gildi gerla og var haft samband við Veitur. Í tölvupósti frá þeim kom í ljós að við hreinsun á rotþrónni hefði komið í ljós að lögn frá henni væri skemmd og þyrfti lagfæringar við. Heilbrigðiseftirlitið fór þegar fram á úrbætur á lögninni,“ segir í svari Kristínar Lóu Ólafsdóttur, fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins.
Þá voru sýni einnig tekin 6. júlí og 17. júlí úr sjónum sem liggur upp við rörið sem og sjósundstaðnum sem er í nágrenni við lagnirnar. Þau hafa komið vel út og verið innan marka hvað varðar afrennsli úr rotþrónni. Þá kemur hins vegar fram í svari heilbrigðiseftirlitsins að gildi hafa hins vegar hækkað vegna mengunar í Klébergslæk sem rennur út við sjósundstaðinn og hafa verð gefnar út tilkynningar vegna þess.
Heilbrigðiseftirlitið mun að minnsta kosti mánaðarlega taka sýni úr sjónum á þessum stöðum. Verður það gert þar til ný skolphreinsistöð verður tekin í notkun.