Á aðventu er gaman að rýna í nýjustu bóksölulista og ef að er gáð kemur á daginn að efst á lista yfir mest seldu ljóðabækurnar er Gamanvísnabókin. Sem ætti að færa okkur heim sanninn um að ferskeytlan, þetta forna ljóðform sem hefur verið Íslendingum hugleikin aftur í aldir, lifir góðu lífi.
Það er hinn afar vinsæli kennari til fjölda ára og fræðimaður, Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku Jökuldal, doktor í bragfræðum, sem tók saman. Þarna er safn fyndnustu, snjöllustu og furðulegustu vísum sem samdar hafa verð af íslenskum hagyrðingum, hvorki meira né minna.
Vísir birtir hér nokkrar þessara vísna, lesendum til skemmtunar:
Að skilnaði mælti’ hún „I miss you
so much that I now have to kiss you!“
– En mér fannst það alls ekkert issue
og afhenti konunni tissue.
Bjarki Karlsson
...
Í janúar svo Jón og Gerður
jóla-VISA-reikning fá.
Ekki víst hvort alltaf verður
afskaplega gaman þá.
Hjálmar Freysteinsson
Hreingerning
Ef á
að
þvo,
þá það.
Bjarni Hafþór Helgason
Þetta mun vera stysta vísa sem gerð hefur verið miðað við að hér eru stuðlar, höfuð- stafir og rím, allt samkvæmt reglunum og merkingarlegt innihald hennar er þar að auki skýrt og skilmerkilegt.
...
Brúnegg koma í búðirnar,
búist er við góðri sölu;
horuðustu hænurnar
hafa skipt um kennitölu.
Hjálmar Freysteinsson
...
Merkilegt hve málfarssviðið
margir teygja breitt og vítt;
nautahakkið þitt er þiðið;
þér hefur sjálfsagt verið rítt.
Björn Ingólfsson
Höfundur kom í kjötbúð og bað um frosið nautahakk en stúlkan sem afgreiddi sagði að því miður þá væri allt nautahakkið þiðið (í stað þess að segja þítt).
...
Þó að napur næði á kinn
norðan gjóstur,
ekki trassar útburðinn
Ársæll póstur.
Hjálmar Freysteinsson
Vísan er ort eftir að í ljós kom að Ársæll Valfells háskólakennari hafði farið með umslag fyrir Gunnar Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, og sett í póstkassa DV. Í umslaginu voru upplýsingar sem Gunnar var að leka til DV.
...
Oft smellti Guðmundur (Gummi)
á Geirríði kossunum (slummi)
en hann var (með sanni)
harðgiftur (manni)
sem heitir víst Hrafn (eða Krummi).
Bjarki Karlsson
...
Ungur var hann efni í mann,
orti strax á koppnum.
Það má segja þetta um hann:
Þá var hann á toppnum.
Bjarni Stefán Konráðsson
Leiðsögumaður hugsar til sumarsins
Þegar völlur þornar senn
og þokar mjöll af grundum,
upp á fjöll og ferðamenn
fer ég öllum stundum.
Jón Ingvar Jónsson
...
Það er almenningsálit í sveitinni
að ást séra Marteins á geitinni
honum síst megi lá
þegar litið er á
hve lík hún er Jórunni heitinni
Jóhann S. Hannesson
...
Ýmislegt ég yrkja kann;
á því hef ég lag.
Skýrslu fyrir skattstjórann
skáldaði ég í dag.
Hjálmar Freysteinsson
Heilræðavísa í anda Hallgríms Péturssonar
Sýru, hass og heróín,
háskasveppi, kókaín,
sprittið, tóbak, spítt og vín
spara skaltu vina mín.
Helgi Zimsen

