Stjarnan skoraði sjö í fyrri hálfleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2017 16:01 Donna Henry skoraði tvívegis gegn færeysku meisturunum. vísir/andri marinó
Stjarnan rúllaði yfir KÍ Klaksvík frá Færeyjum, 9-0, í riðli 7 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í dag. Riðilinn er leikinn í Osijek í Króatíu. Eins og tölurnar gefa til kynna var þetta auðvelt dagsverk hjá Íslandsmeisturunum. Agla María Albertsdóttir kom Stjörnunni yfir strax á 8. mínútu. Staðan var 1-0 fram á 31. mínútu þegar Garðbæingar settu í fluggírinn og skoruðu sex mörk á 13 mínútum. Ótrúlegur kafli hjá Íslandsmeisturunum sem leiddu 7-0 í hálfleik. Stjörnukonur tóku fótinn af bensíngjöfinni í seinni hálfleiknum og létu tvö mörk í viðbót nægja. Lokatölur 9-0, Stjörnunni í vil. Guðmunda Brynja Óladóttir og Donna Kay Henry skoruðu tvö mörk hvor fyrir Stjörnuna. Agla María, Katrín Ásbjörnsdóttir, Bryndís Björnsdóttir og Lára Kristín Pedersen skoruðu eitt mark hver og þá skoraði leikmaður KÍ Klaksvík sjálfsmark. Stjarnan leikur næst gegn Istatov frá Makedóníu á föstudag og að síðustu gegn Osijek á mánudag.
Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira