
Freyr: Var orðinn svolítið örvinglaður áður en ég sá ljósið

Freyr spilaði meira og minna alltaf á sama byrjunarliðinu sem vann níu af tíu leikjum sínum og fékk aðeins á sig tvö mörk. Lífið var gott og nokkuð einfalt fyrir Frey og hans menn.
Sjá einnig:Reynsluboltar í nýjum hlutverkum í Hollandi
En á einu augabragði fóru leikmenn að hrúgast í meiðsli og markahæsti leikmaður undankeppninnar varð ólétt. Hún, ásamt tveimur lykilmönnum, eru tiltölulega nýkomnar aftur og verða í öðrum hlutverkum á EM og þá eru reynsluboltar eins og Margrét Lára Viðarsdóttir og Dóra María Lárusdóttir með slitið krossband.
Ungstirni eins og Agla María Albertsdóttir úr Stjörnunni laumaði sér í staðinn inn í lokahópinn sem og Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður úr Breiðabliki, sem á aðeins tvo landsleiki að baki. Margt hefur breyst á nokkrum mánuðum hjá landsliðinu.
„Ef við hefðum staðið hérna og reynt að skrifa þetta handrit fyrir tólf mánuðum hefðum við sagt að þetta væri bara bull og ekkert af þessu myndi gerast. En þetta gerðist allt,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari sem viðurkennir að honum leist ekki á blikuna um tíma.
„Það kom tímapunktur þar sem ég var svolítið örvinglaður og vissi ekki nákvæmlega hvernig ég ætti að halda utan um þetta en svo eftir verkefnið í apríl þá sá ég ljósið, þótt að ótrúlegt sé.“
Sjá einnig:Harpa: Tek pressunni fagnandi
Stelpurnar okkar unnu fínan sigur á Slóvakíu, 2-0, í apríl en fengu svo 4-0 skell á móti gestgjöfum Hollands í Doetinchem þar sem liðið mætir Sviss í öðrum leik sínum á EM. Þarna var útlitið ekki gott.
„Þegar að maður fær eitthvað svona í andlitið og maður finnur takt sem er ekki alveg í takt. Þá fórum við í svakalega góða og djúpa vinnu um hvernig við vildum gera þetta,“ segir Freyr sem fékk miklu betri leiki frá landsliðinu í síðustu viku á móti Írlandi og Brasilíu.
„Núna er ég orðinn ofboðslega spenntur og fullur tilhlökkunar að takast á við Evrópumótið með þeim hætti sem við sýndum hérna á móti Brasilíu og með þessa leikmenn. Hitt er búið og nú er nýtt upphaf,“ segir Freyr Alexandersson.
Tengdar fréttir

Harpa: Tek pressunni fagnandi
Þrátt fyrir að hafa eignast barn í vetur og aðeins spilað 138 mínútur með Stjörnunni í sumar var Harpa Þorsteinsdóttir valin í íslenska landsliðið sem fer á EM í Hollandi í næsta mánuði.

Freyr: Hefði getað sprungið í andlitið á okkur
Freyr Alexandersson segir að mikil meiðsli lykilmanna í landsliðinu hafi gert honum erfitt fyrir.

Svona var EM-hópurinn tilkynntur | Myndband
Freyr Alexandersson tilkynnti EM-hópinn sem fer til Hollands í næsta mánuði en fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi.

EM-hópurinn valinn: Harpa fer með til Hollands
Framherjinn Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni fer með íslenska landsliðinu á EM í Hollandi en EM-hópurinn var tilkynntur á blaðamannafundi í Laugardalnum rétt í þessu.

Freyr hefur ekki áhyggjur af Hörpu, Söndru og Hólmfríði
Sandra María Jessen, Hólmfríður Magnúsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir hafa lítið spilað síðustu vikur og mánuði.

Freyr: Harpa er með því að hún er nægilega góð
Harpa Þorsteinsdóttir var sú eina sem fékk að vita fyrirfram að hún væri með í EM-hópi Íslands.