Snapchat keppnin So You Think You Can Snap fór fram í fyrsta skipti á síðasta ári og fékk gríðarlega mikið áhorf. Mest horfðu 25 þúsund manns á keppnina á einum sólahring. Að keppninni standa meðlimir Áttunnar og er keppnin farin af stað í ár.
20 framhaldsskólar taka þátt í So You Think You Can Snap og keppa um það hver sé með besta snapparann.
Keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official og líkt og á síðasta ári mun Vísir fylgjast vel með gangi mála. Sigurvegarinn fær Lenovo fartölvu frá Nýherja í verðlaun. Fyrstu skólarnir keppatu í gær og þar mættust Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn á Akureyri.
Sölvi Halldórsson keppti fyrir hönd MA og Eydís Einarsdóttir fyrir MK. Hér að ofan má sjá hvernig skólarnir stóðu sig í þessari fyrstu umferð. Það kemur síðan í ljós á morgun hver fer með sigur af hólmi.
Dagskrá fyrstu umferðar keppninnar:
14.ágúst
Menntaskólinn í Kópavogi vs. Menntaskólinn á Akureyri
15.ágúst
Kvennaskólinn í Reykjavík vs. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
16.ágúst
Fjölbrautaskóli Suðurlands vs. Fjölbrautaskóli Vesturlands
17.ágúst
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ vs. Fjölbrautaskólinn við Ármúla
18.ágúst
Flensborgarskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands
So You Think You Can Snap: Benebitch og einn allur í brennisteini
Stefán Árni Pálsson skrifar