Segir það tímaspursmál hvenær Bretland verði næst fyrir hryðjuverkaárás Atli Ísleifsson skrifar 31. júlí 2016 17:00 Æðsti yfirmaður lögreglunnar í London, Sir Bernard Hogan-Howe. Vísir/AFP
Æðsti yfirmaður lögreglunnar í London, Sir Bernard Hogan-Howe, segir það einungis vera tímaspursmál hvenær Bretland verði næst skotmark hryðjuverkamanna. Hogan-Howe skrifar grein í Mail on Sunday í tilefni af nýlegum hryðjuverkaárásum í Evrópu og segir Breta standa frammi fyrir „mjög raunverulegri ógn“. „Ég finn fyrir og skil þann ótta, og sem lögreglustjórinn sem ber ábyrgð á að koma í veg fyrir slíkar árásir þá veit ég að þið viljið að ég rói ykkur. Ég get ekki fullkomlega gert það. Viðbúnaðarstig okkar [...] þýðir að árás er talin mjög líkleg – og hægt er að segja að spurningin sé hvænær, ekki hvort.“ Viðbúnaðarstig vegna mögulegrar hryðjuverkaárásar hefur verið hátt í Bretlandi allt frá ágúst 2014 og segir lögreglustjórinn að lögreglu hafi tekist að koma í veg fyrir fjölda árása. Hann hrósaði jafnframt breskum almenningi fyrir „umburðarlyndi og viðurkenningu“ og sagði að „sameiginleg gildi“ ólíkra hópa, sem og breskir lifnaðarhættir og menning, geri Bretland næmari fyrir hryðjuverkaárásum.Í frétt Sky News um málið er einnig haft eftir Hogan-Howe að leiðin til að sigra hryðjuverkamennina felist ekki síður í að neita því að gefa sig hræðslunni á vald. Þá sagði hann breskan almenning eiga í betri samskiptum við lögreglumenn en þekkist víða annars staðar þar sem þeir væru óvopnaðir.
Mest lesið Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Innlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Fleiri fréttir Höfuðstöðvar UNRWA í Jerúsalem rifnar Reyndu að fá dómara til að hlutast til um mál Le Pen Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Sjá meira