Sarkozy tapaði fyrir Fillon og Juppé Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. nóvember 2016 07:00 Nicolas Sarkozy var forsætisráðherra Frakklands í fimm ár, frá 2007 til 2012, en hefur misst af tækifærinu til endurkomu á næsta ári. vísir/epa
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi Frakklandsforseti, verður ekki í framboði til forseta Frakklands þegar kosningar verða haldnar næsta vor. Hann fékk ekki nógu mörg atkvæði í forvali flokks Lýðveldissinna, sem haldið var um helgina. Lýðveldissinnar eru stærsti flokkur hægri manna á franska þinginu, arftakar UMP-flokksins sem skipti um nafn á síðasta ári. Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar, þeir François Fillon og Alain Juppé, urðu efstir í forvalinu en þar sem hvorugur þeirra hlaut hreinan meirihluta verður kosið á milli þeirra í annarri umferð á sunnudaginn kemur. Fyrirfram hafði verið búist við því að Sarkozy ætti góða möguleika, en mikið fylgi Fillons kom á óvart. Juppé hafði verið efstur í skoðanakönnunum og Sarkozy næstur. Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, hefur síðan mælst með vaxandi fylgi í skoðanakönnunum undanfarið. Fyrir helgi birtust fjórar skoðanakannanir, sem allar sýndu að hún ætti mun betri möguleika en Sarkozy í forsetakosningunum. Það yrði þá í fyrsta sinn sem Frakkar kysu forseta úr röðum hægri þjóðernissinna. Hún fékk hins vegar þriðja mesta fylgið í forsetakosningum árið 2012, næst á eftir Sarkozy og François Hollande, sem sigraði. Juppé ætti hins vegar samkvæmt skoðanakönnunum betri möguleika gegn Le Pen í þetta sinn. Fyrri umferð forsetakosninganna verður haldin 23. apríl. Hljóti enginn frambjóðenda hreinan meirihluta þá verður efnt til annarrar umferðar hinn 7. maí.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira