Vímulaus æska í 30 ár Stefán Þór Hjartarson skrifar 20. september 2016 10:30 Frá stofnun Vímulausrar æsku í Háskólabíói fyrir réttum 30 árum þar sem frú Vigdís var meðal annars viðstödd. Vísir/Vímulaus æska
Þann 20. september árið 1986 voru samtökin Vímulaus æska stofnuð formlega fyrir framan fjölmenni í Háskólabíói þannig að í dag eru samtökin orðin 30 ára. Meðal þeirra sem mættu á athöfnina í Háskólabíói var Vigdís Finnbogadóttir. Fyrsti formaður samtakanna var Bogi Arnar Finnbogason. Samtökin voru stofnuð af foreldrum sem ákváðu að standa saman gegn vímuefnaneyslu ungmenna sem var á þessum tíma vaxandi vandamál allsstaðar í vestrænum heimi. Nokkrum vikum eftir þessa athöfn stóð Bylgjan, sem þarna var nýstofnuð, fyrir söfnun til styrktar samtökunum og þar var rekstur þeirra tryggður.Guðni Björnsson framkvæmdarstjóriVísir/Vímulaus æska„Það merkilegasta kannski við þessi samtök er að við stofnuðum Foreldrahús árið 1999 – Vímulaus æska á og rekur Foreldrahús og þar er starfsemi samtakanna í dag. Auk þess má auðvitað telja upp Foreldrasímann sem var stofnaður 1986 og hefur ekki sofnað síðan,“ segir Guðni Björnsson, framkvæmdastjóri Foreldrahúss og Vímulausrar æsku, en Foreldrahús er á Suðurlandsbraut 50 og þar er hægt að hitta ráðgjafa sem veitir foreldrum ráðgjöf og stuðning frá níu til fjögur alla virka daga. Foreldrasíminn er neyðarsími fyrir foreldra og aðstandendur barna og ungmenna sem hafa lent í vanda vegna vímuefnaneyslu og tengdra erfiðleika. Hjá foreldrasímanum starfa ráðgjafar sem eru tilbúnir að leiðbeina foreldrum barna í vímuefnavanda. Foreldrasíminn er hugsaður sem fyrsta hjálp og staður fyrir foreldra til að fá ráð um hvert næsta skref skuli vera allan sólarhringinn. Foreldrasíminn er styrktur af Reykjavíkurborg og velferðarráðuneytinu. „Við munum minnast tímamótanna með ýmsum hætti – í haust verður málþing hjá okkur um foreldra og forvarnir, á sama tímapunkti kemur út afmælisrit samtakanna þar sem verður farið yfir sögu þeirra og starf síðustu þrjátíu ár. Auk þess er í blaðinu viðtal við forseta Íslands og konu hans, þannig að þetta er merkileg útgáfu í tengslum við þetta afmæli. Það var einmitt forseti Íslands á þeim tíma, Vigdís Finnbogadóttir, sem sat með okkur þegar samtökin voru stofnuð. Svona erum við fram að jólum búin að vinna á okkur á nýstárlegan hátt í gegnum samfélagsmiðlana. Þar eru ýmsir leikir og annað sem við höfum notað til að vekja athygli á okkur,“ segir Guðni að lokum.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira