Milos eyddi gærkvöldinu með Mancini og Stankovic og stýrir Víkingum ekki annað kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. mars 2016 17:00 Milos Milojevic var í góðum félagsskap í gærkvöldi. vísir/getty
Milos Milojevic, þjálfari Pepsi-deildarliðs Víkings, verður ekki á hliðarlínunni þegar Víkingar mæta Grindvíkingum í Lengjubikarnum í Egilshöll annað kvöld. Milos er staddur í Mílanó sem gestur Internazionale, en heimsókn hans til liðsins er hluti af UEFA Pro þjálfararéttindunum sem hann er að klára. Serbinn, sem tók einn við sem aðalþjálfari Víkings síðasta sumar þegar Ólafur Þórðarson var rekinn, var á vellinum í gærkvöldi þegar Inter tapaði í undanúrslitum ítalska bikarsins gegn Juventus. Leikurinn var mikil skemmtun, en eftir að tapa fyrri leiknum í Tórínó, 3-0, vann Inter 3-0 á heimavelli í gær en féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni. Hefði Inter komist áfram hefði verið Mílanóslagur í úrslitaviðureigninni. Eftir leikinn eyddi Milos kvöldinu með þjálfarateymi Inter; Roberto Mancini og Dejan Stankovic. „Magnaður leikur í kvöld en svekkjandi að tapa í vító. Gaman að eyða kvöldinu með herra Mancini og Dejan Stankovic,“ skrifar Milos á Twitter-síðu sína. Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari Víkings, stýrir liðinu gegn Grindavík annað kvöld. Víkingar eru á toppi riðils þrjú í Lengjubikarnum eftir tvo sigra á 1. deildar liðum HK og Hauka.Magnaður leikur í kvöld en svekjandi að tappa í vitó#IntervsJuve#gamann að eyða kvöld með Mr.Manchini&D.Stankovic#legends— Milos Milojevic (@milosm18) March 3, 2016
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira