Garðar Gunnlaugsson er búinn að skora meira en allt KR-liðið til samans Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. júlí 2016 19:00
KR er í frekar óvæntri og erfiðri stöðu í Pepsi-deild karla í fótbolta eftir tíu umferðir en þetta gríðarlega vel mannaða lið sem ætlaði sér Íslandsmeistaratitilinn er í tíunda sæti með tíu stig. KR-liðinu gengur ekkert að skora mörk en það er búið að skora fæst allra liða í Pepsi-deildinni eins og kom fram á Vísi fyrr í dag. KR er ekki búið að skora nema átta mörk, einu færra en Þróttur og Fylkir sem eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar. Garðar Gunnlaugsson er markahæstur í Pepsi-deildinni með níu mörk en hann skoraði níu mörk á allri síðustu leiktíð þegar hann glímdi við mikið af meiðslum. Garðar er búinn að skora jafnmörg mörk og allt lið Þróttar og Fylkis og einu marki meira en Vesturbæjarrisinn KR sem er aðeins búinn að skora átta mörk í Pepsi-deildinni eða fæst allra liða. Um miðjan júní var KR búið að skora sex mörk en Garðar þrjú. Síðan skildu leiðir. KR hefur aðeins skorað tvö mörk í síðustu fjórum deildarleikjum en í gærkvöldi fór Garðar fram úr KR-ingum þegar hann skoraði sigurmark ÍA gegn Breiðabliki. Þetta var enn fremur 50. mark Garðars í efstu deild á Íslandi. Hann hefur nú skorað 36 fyrir ÍA og fjórtán fyrir Val. Frétt Arnars Björnssonar í kvöldfréttum Stöðvar 2 um markaskorun Garðars og KR má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira