Segir lækkun stýrivaxta of litla og koma of seint Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 24. ágúst 2016 16:06 Þorsteinn Sæmundsson. vísir/vilhelm
Lækkun stýrivaxta var þingmönnum hugleikin undir dagskrárliðnum Störf þingsins í dag. Þingfundurinn var með styttra lagi en Störf þingsins voru eini dagskrárliður fundarins. Almenn ánægja virtist vera meðal þingmanna um ákvörðun peningastefnunefndar. Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fagnaði því að peningastefnunefnd hefði „ákveðið að sjá ljósið“ en sagði lækkunina vera of litla og koma of seint. „ég vona auðvitað að þetta verði til þess að þetta sé einungis fyrsta skrefið af fleirum. því hvað sem öllu líður eru stýrivextir á íslandi enn of háir,“ sagði Þorsteinn meðal annars. Elsa Lára Arnardóttir, þingkona Framsóknarflokksins, sagði mikilvægt að „fjármálastofnanir sem skila hagnaði og búa við gott bú leyfi hagnaði að renna til heimila landsins með lægra vaxtastigi eða færri og lægri þjónustugjöldum sem rukkað er um.“ Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði ákvörðun peningastefnunefndar vera tíðindi dagsins. „Þegar ég segi tíðindi, virðulegi forseti, þá ásamt hagstæðum skilyrðum, stöðugleika, hefur peningastefnan verið aðhaldssöm og auðvitað er það mikilvægt til að varðveita stöðugleikann. Þessi ákvörðun felur jafnframt í sér vísbendingu um styrka efnahagsstjórn hæstv. ríkisstjórnar og ákvarðanir á þessu kjörtímabili sem gefa fyrirheit um að við getum enn frekar lækkað raunvexti,“ sagði Willum meðal annars.
Mest lesið Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Þolinmæði saminganefnda á þrotum Innlent Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira