Fékk konungsleyfi fyrir bæjarfána í Borgum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 3. september 2016 08:45 Karl með bókina sem geymir minningar, greinar og frásagnir afa hans, Hákonar Finnssonar, bónda. Vísir/Eyþór
Afi ólst upp sem sveitarómagi á Rangárvöllum eftir að jörð foreldranna fór í eyði vegna sandfoks og fjölskyldan flosnaði upp. Systkinin voru tíu en aðeins fimm þeirra komust til fullorðinsára. Við fundum handrit eftir afa frá árinu 1905 og sú lesning lætur engan ósnortinn,“ segir Karl Skírnisson dýrafræðingur sem hér er að tala um Hákon Finnsson, bónda í Borgum í Hornafirði. Karl og frændi hans, Hákon Hansson dýralæknir, hafa gefið út bók um þennan afa sinn og ætla að halda útgáfuhátíð klukkan 15.30 á morgun, 4. september á bókasafni Tilraunastöðvarinnar á Keldum. „Þetta er harðspjaldaútgáfa með 84 myndum. Sumar eru eftir Höskuld Björnsson listmálara, til dæmis kápumyndin af Borgum. Afi fékk konungsleyfi fyrir bæjarfána, hann hékk við hliðina á íslenska fánanum uppi á bænum, sem Hákon hannaði sjálfur í burstastíl og lýst er í smáatriðum í bókinni,“ segir Karl. Einn kaflinn er um organistann, kórstjórann og kennarann því eftir að Hákon fór í Möðruvallaskóla og varð hann unglingakennari austur á landi, að sögn Karls. En hvað um ástarsögu afa hans og ömmu? „Afi kemur um aldamótin austur í Fljótsdal. Þar kynnist hann Ingiríði ömmu sem er þar vinnukona. Eftir það fer hann til Danmerkur og í Skotlands að vinna á búgörðum og kynna sér landbúnað. Kemur til landsins aftur 1906 með Vestu frá Skotlandi til Reykjavíkur og kaupir sér hestinn Blesa, sem var reiðhestur hans í mörg ár. Byrjar á að fara austur fyrir fjall að heimsækja vini sína sem eru í veri í Þorlákshöfn, skoða Gullfoss, Geysi og Þingvöll, ríður upp á Hvanneyri, fer svo austur norðanlands og lýsir því þegar hann kemur að Skriðuklaustri og hittir Ingu ömmu aftur. Þá hafði hún setið í festum í tvö ár. Þau opinbera trúlofun eftir 20 daga og gifta sig ári seinna. Þessu er lýst í smáatriðum í bókinni.“ Hákon gerðist síðar frumkvöðull í ræktun í Hornafirði og fékk heiðursgjöf úr styrktarsjóði Kristjáns konungs níunda „fyrir framúrskarandi dugnað í jarðabótum, byggingum og öðru sem að búnaði lýtur.“
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira