Hetja Stjörnunnar: Vissi allan tímann hvert Pape myndi skjóta Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. maí 2016 23:45 Hörður Fannar þegar hann lék með Fram. vísir/andri marinó
Leikur Stjörnunnar og Víkings Ó. rennur Herði Fannari Björgvinssyni eflaust seint úr minni. Vegna forfalla tveggja markmanna Stjörnunnar stóð Hörður í markinu í kvöld og hann reyndist hetja liðsins með því að verja tvær spyrnur í vítakeppninni sem þurfti að grípa til eftir að staðan var jöfn, 2-2, eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. „Ég vissi hvar margir myndu skjóta,“ sagði Hörður sem þurfti að glíma við átta spyrnur í vítakeppninni. „Það fer rosalega lítið í gegnum hausinn á manni. Maður ákveður bara hvert maður ætlar að fara,“ bætti Hörður við. Hann var vel undirbúinn fyrir vítakeppnina.Sjá einnig: Sjáið vítaspyrnukeppnina í Garðabænum í heild sinni | Myndband „Ég vissi allan daginn hvert Pape [Mamadou Faye] var að fara að skjóta. Það kom mér ekki á óvart,“ sagði Hörður sem varði einnig frá Alfreð Má Hjaltalín. Markvörðurinn ungi viðurkennir að hafa fundið fyrir smá taugaspennu á meðan leiknum stóð en ekki fyrir hann. „Það kom smá stress í framlengingunni en það er eðlilegt. En ég var ekkert stressaður fyrir leikinn, ég spila með góðum strákum sem eru tilbúnir að hjálpa mér,“ sagði hetja Stjörnunnar í kvöld að endingu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Fleiri fréttir „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Sjá meira